Lestu þér til um bólguvaldandi mataræði 22. janúar 2014 17:00
Bólgur eru merkilegt fyrirbæri og hafa líklega mikið meiri áhrif en okkur grunar eins og fram kemur í pistli á vefnum Hjartalif.is. Mataræði gegnir hér hlutverki og merkileg þykir tengingin á milli hjarta og æðasjúkdóma og þunglyndis. Axel F. Sigurðsson hjartalæknir hefur skoðað málið en hann heldur úti vefsíðunum mataraedi.is og docsopinion.com en hann skrifar eftirfarandi: Talið er að 12-15 þúsund Íslendingar þjáist af þunglyndi á hverjum tíma. Sjúkdómurinn er því býsna algengur hér á landi. Fleiri konur glíma við þunglyndi en karlar. Í Bandaríkjunum er talið að fimmta hver kona þjáist af þunglyndi einhvern tíman á lífsleiðinni. Sjúkdómnum fylgja skert lífsgæði, minnkaðar lífslíkur og aukin hætta á öðrum sjúkdómum, þar á meðal eru hjarta-og æðasjúkdómur, sykursýki og ýmis krabbamein. Þunglyndi hefur margþætt einkenni. Þau eiga það sameiginlegt að draga úr lífsgleði og framtakssemi. Hæfni einstaklingsins til að takast á við daglegt líf skerðist og erfiðara verður að sinna daglegum athöfnum, rækta fjölskyldu og vini. Truflanir í líkamsstarfsemi þunglyndra eiga margt sameiginlegt með þeim sem sjást hjá einstaklingum með hjarta-og æðasjúkdóma og efnaskiptavillu. Þunglyndir sýna oft merki um insúlínmótstöðu og truflanir í starfsemi æðaþels. Þá má oft finna merki um langvinna, hægfara bólguvirkni hjá einstaklingum með þunglyndi. Svipuð bólguvirkni finnst oft hjá sjúklingum með hjarta-og æðasjúkdóma, sykursýki og sum krabbamein. Því hafa sumir fræðimenn talið mögulegt að langvinnar bólgur séu mikilvæg orsök allra þessarra sjúkdóma og hugsanlega þráðurinn sem tengir þá saman.Margar rannsóknir benda til þess að mataræði geti bæði dregið úr og aukið bólguvirkni í líkamanum. Um þetta hef ég fjallað ítarlega í annarri grein. Því er hugsanlegt að mataræði okkar geti haft áhrif á hættuna á að fá þunglyndi. Bandarískir vísindamenn við Harvard háskólann í Boston leituðust nýlega við að svara þessarri spurningu í stórri faraldsfræðilegri rannsókn á konum. Niðurstöðurnar voru birtar í tímaritinu "Brain, Behaviour and Immunity". Lestu greinina í heild sinni hér - þar á meðal svokallaðan Bólgustuðul.
Mest lesið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Sjá meira