Innlent

Heiða Björg gefur kost á sér í 3.-4. sæti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Heiða Björg Hilmisdóttir gefur kost á sér í 3.-4. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar.
Heiða Björg Hilmisdóttir gefur kost á sér í 3.-4. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar. mynd/aðsend
Heiða Björg Hilmisdóttir formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-4. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar vegna komandi borgarstjórnarkosninga:

Sem formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar hef ég lagt ríka áherslu á mikilvægi þess að konur gefi kost á sér til forystustarfa og  með framboði mínu undirstrika ég þá afstöðu mína í verki.  Ég hef brennandi áhuga á samfélaginu og vil leggja mitt lóð á vogarskálarnar til að Samfylkingin fái ótvírætt umboð í komandi borgarstjórnarkosningum til að leiða uppbyggingarstarfið í Reykjavík.   

Ég vil gera Reykjavík að enn betri borg fyrir börn, unglinga og barnafjölskyldur.  Allt samfélagið hagnast á öflugri þjónustu við barnafjölskyldur og þar bíða mörg brýn verkefni. Sem uppalandi þriggja barna og virkur þátttakandi í foreldrastarfi leikskóla, grunnskóla, frístundastarfs og íþróttafélaga, hef ég kynnst mikilvægu starfi borgarinnar í þessum efnum.

Við þurfum að tryggja meiri samfellu í skólastarfinu og nánara samstarf skóla og frístundaheimila við foreldra. Það tel ég vísa leið að bættum árangri og betri líðan barnanna okkar. Skólamáltíðir eru einnig mikilvægur þáttur í skólastarfi og þær eiga að standa öllum börnum til boða án gjaldtöku.

Ég vil gera Reykjavík að að þjónustumiðaðri og heilsueflandi borg. Reykjavík á að tryggja borgarbúum heilnæmt umhverfi og stuðningi þegar á þarf að halda. Sem virkur þátttakandi í félagasamtökum langveikra veit ég hversu ótrúlega dýrmætt það getur reynst að þjónusta borgarinnar sé sveigjanleg og einstaklingsmiðuð, ekki síst til að koma til móts við mismunandi þarfir barnafjölskyldna, fatlaðra, langveikra og aldraðra.

Þjónustumiðstöðvar borgarinnar þurfa að standa borgarbúum nærri líkt og heilsugæslan, þannig að allir finni að nærsamfélagið standi með þeim. Sem næringarrekstrarfræðingur veit ég líka að mikilvægur áhrifaþáttur á heilbrigði og lífshamingju borgarbúa liggur í heilsusamlegu líferni og mataræði. Því vil ég sjá hollar og  góðar máltíðir í leikskólum, grunnskólum og á öldrunarstofnunum þar sem einstaklingar geta valið það sem þeim hentar best.

Ég vil gera Reykjavík að borg jafnréttis, jöfnuðar og réttlætis. Sem jafnaðarmaður og einlægur  jafnréttissinni vil ég að höfuðborg Íslands verði í fararbroddi í mannréttindamálum, ekki bara hér á landi heldur í heiminum öllum.  Launamunur kynjanna, kynbundið ofbeldi, ofbeldi gegn börnum, fátækt, bágar aðstæður meðal fatlaðs fólks og aldraðra – allt eru þetta brýn mál sem verður að hafa í forgangi á næsta kjörtímabili í baráttunni fyrir auknu réttlæti. 

Fái ég brautargengi í flokksvali Samfylkingarinnar og komandi borgarstjórnarkosningum, mun ég berjast fyrir þessum málum sem borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.

Heiða Björg er 42 ára og starfar sem deildarstjóri Eldhúss og matsala á Landspítalanum.

Hún er með meistarpróf í næringar-rekstrarfræði frá Gautaborgarháskóla og MBA í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Heiða Björg hefur um árabil skrifað um mat og næringu í blöð og tímarit og hefur í félagi við Dr. Bryndísi Evu Birgisdóttur gefið út matreiðslubók. Önnur bók Heiðu Bjargar er væntanleg í vor.

Heiða Björg hefur verið virk í félagsstörfum,  meðal annars gegnt formennsku í  Matvæla og næringarfræðafélagi Íslands og setið í stjórn Starfsmannaráðs Landsspítala og Manneldisfélagsins.

Um þessar mundir er Heiða Björg formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar og varaformaður MS félags Íslands.

Heiða Björg er gift Hrannari Birni Arnarssyni og eiga þau fjögur börn, fimm, átta, fimmtán og tuttugu og tveggja ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×