Var þakinn bólum eftir kláðamaur Elimar Hauksson skrifar 10. janúar 2014 15:45 Á myndinni sjást hvernig útbrot myndast af kláðamaurnum.
Móðir 19 ára drengs segir son sinn hafa verið þakinn bólum og útbrotum eftir að hann fékk kláðamaur. Hún segir son sinn hafa stundað ljósabekki mjög mikið á þeim tíma sem smitið kom upp og heldur því fram að hann hafi smitast í ljósabekk. Móðirinn vildi ekki koma fram undir nafni enda segir hún málið viðkvæmt fyrir son sinn. Hún segir smitið hafa verið stórmál enda hafi þurft að þrífa öll föt af drengnum, og þrífa herbergið hátt og lágt, auk þess sem hann hafi þurft að vera þakinn smyrsli í nokkra daga. „Fyrst sáum við bara litlar bólur á honum og héldum að hann væri að fá ofnæmisviðbrögð en síðan var þetta komið útum allt. Þetta var alveg hræðilegur tími fyrir strákinn,“ segir móðirin. Hún bætir við að ljósabekkjastofur verði að vera meðvitaðar um kláðamaurssmit og ekki sé nóg að þrífa bara bekkina á milli viðskiptavina. „Það þarf náttúrulega að sótthreinsa þessa bekki, koddana og gleraugun sem fólk notar. Mér dettur ekki í hug að fara nokkurn tímann aftur í ljós eftir að hafa séð son minn.“Hélt áfram í ljósum eftir smitið Húðsjúkdómalæknir sem Vísir ræddi við sagði það vel mögulegt að kláðamaur smitist í ljósabekkjum en slíkt sé þó erfitt að rekja. Maurinn geti bæði smitast við kynmök og eftir öðrum leiðum. Móðirin segist meðvituð um aðrar smitleiðir en henni þykir ólíklegt að smitið hafi komið upp eftir öðrum leiðum enda hafi sonurinn verið einn í herbergi á þessum tíma og enginn annar í fjölskyldunni hafi smitast. Smitið hafi því komið annars staðar en frá heimilinu. „Fyrir utan það að sonur minn hélt áfram að fara í ljós eftir smitið enda vissi hann ekkert að hann væri með kláðamaur. Það gæti því verið að hann hafi smitað aðra án þess að vita það,“ segir móðirin.Mikilvægt að leita sér meðferðar Kláðamaur telst til skráningarskyldra sjúkdóma en hjá embætti Landlæknis fengust þær upplýsingar að samkvæmt mælingum hér á landi sé aukning í smiti á kláðamaurs. Árið 2010 voru 138 skráð smit en árið 2013 voru þau hins vegar 288.Ása Atladóttir, sérfræðingur í sýkingavörnum hjá embættinu segir mikilvægt að leita sér meðferðar, verði fólk vart við einkenni kláðamaurs. „Læknar hafa sumir hverjir áhyggjur af kláðamaurnum af því hann getur orðið vandamál. Þetta er eitthvað sem lagast ekki af sjálfu sér heldur þarfnast meðferðar. Þeir sem fá einkenni um smit þurfa að leita til læknis og fá ávísuð lyf til að uppræta smitið svo það breiðist ekki út,“ segir Ása. Á vefsíðu landlæknis eru upplýsingar um kláðamaur og hvernig bregðast á við smiti en hægt er að nálgast upplýsingarnar HÉR.
Mest lesið Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Innlent Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Innlent Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Innlent Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni Innlent Ummerki um að vegurinn hafi gefið sig Innlent Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Innlent „Þessi iðnaður er með meira eða minna allt niður um sig“ Innlent Allir um borð í rútunni Íslendingar Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Tólf látin og tugir særð eftir árás á byggingavöruverslun Erlent Fleiri fréttir Segir veginn ekki hafa gefið sig Vilja nýtt hjúkrunarheimili í Vík í Mýrdal Yazan bíður enn svara Segir róðurinn vera að þyngjast fyrir Ísraelsmenn Íslendingurinn enn á sjúkrahúsi í Bangkok Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Öruggast að sjóða neysluvatn á Flateyri Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Rútuslys í Rangárþingi og óvissa um brottflutning palestínsks drengs Ummerki um að vegurinn hafi gefið sig Malbika hægri akrein Reykjanesbrautar á morgun Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni „Þessi iðnaður er með meira eða minna allt niður um sig“ Auglýst eftir ungum og efnilegum hökkurum Allir um borð í rútunni Íslendingar Óttast eyðileggingu íslenskrar brimbrettamenningar Geir og Jóhanna lýsa yfir stuðningi við Höllu Hrund Bregst við áhyggjum af áfengissölu og áhyggjur brimbrettakappa Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi Lögreglan náði lausum grís Enginn kemst sjálfkrafa í könnunarhóp Prósents Afmælisstemming hjá Eldstó á Hvolsvelli Líst illa á áfengissölu Hagkaups: „Ég tel bara að það þurfi að fara að lögum“ Þrjátíu og fimm kílómetrar í kjörstað Enginn einn frambjóðandi augljós keppinautur Katrínar „Þetta er bara strangheiðarleg jarðskjálftahrina“ Segir fyrirhugaða áfengissölu Hagkaups lögbrot og jarðskjálftahrina í Hengli Sjá meira