Börn á gráu svæði fá ekki nægan stuðning Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 13. janúar 2014 14:31 Félagsleg staða fólks ákvarðast mikið af menntun. Mikilvægt er að börnum líði vel í skólanum svo þau haldist lengur í námi. vísir/Vilhelm
Börn sem ekki eru með greiningu á geðrænum vankvæðum en eiga við félagslegan eða námstengdan vanda að stríða í grunnskóla fá ekki við stuðning við hæfi í skólum sínum. Þetta eru helstu niðurstöður rannsóknar sem Erla Dögg Kristjánsdóttir, nemi í félagsráðgjöf, gerði með viðtölum við foreldra barna á svokölluðu gráu svæði. „Börn á gráu svæði hafa ekki uppfyllt greiningarviðmið, eru á biðlista eftir greiningu eða fara hreinlega ekki í greiningu. Þau þurfa aftur á móti aukinn stuðning í skóla vegna vandamála sem þau glíma við, til dæmis meira næði, meiri tíma með kennara, félagslegan stuðning og meiri námshjálp.“Erla Dögg Kristjánsdóttir, nemi í félagsráðgjöf, tók viðtal við foreldra barna á svokölluðu gráu svæði. Mynd/Valli Erla segir að heilt yfir hafi börnin sem tóku þátt í rannsókninni ekki fengið það einstaklingsmiðaða nám sem skóli án aðgreiningar gengur út á, en það er sú hugmyndafræði sem er ríkjandi í grunnskólum landsins. „Flestir viðmælendur voru sammála um að þetta snérist um fjármagn. Það var sagt við einn viðmælanda að því barnið væri ekki með greiningu væri ekki til fjármagn til að veita því viðbótarstuðning. Foreldrarnir voru þó sammála um að hugmyndafræðin um skóla án aðgreiningar væri falleg en að framkvæmdin væri ekki í samræmi við fræðin. Þeir voru ekki ósáttir við kennarann sem slíkan heldur uppbyggingu skólakerfisins.“ Margir foreldranna voru búnir að finna leiðir til að aðstoða börnin sín heimafyrir með óhefðbundnum leiðum, svo sem verklegum æfingum eða á sjónrænan hátt. „Þessar aðferðir skiluðu sér ekki í skólana þrátt fyrir að foreldrarnir hafi ítrekað rætt við kennara og stjórnendur og reynt að fá það í gegn. Í skólunum virðist vera ákveðinn kassi og ef barnið passar ekki inn í kassann eru kennarar ráðalausir. Kennsluhættir virðast vera niðurnjörvaðir og haldið í gamlar hefðir í stað þess að virkja börnin þar sem þeirra styrkleikar liggja.“ Erla segir mikilvægt fyrir framtíð barnanna að grunnurinn sé góður. „Grunnskólinn er fyrsta stigs þjónusta og það skiptir öllu máli að þjónustan sé góð. Rannsóknir hafa sýnt að brottfall úr námi megi rekja til vöntunar á stuðningi í grunnskólum þar sem börnin koma ekki nægilega undirbúin úr skólanum fyrir næsta námsstig.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Sjá meira