Lífið

Myndar sig léttklædda eftir æfingu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian myndaði sig í bak og fyrir eftir æfingu um helgina og deildi myndunum á Instagram-síðu sinni.

Á myndunum stillir hún sér upp með vinkonu sinni Blac Chyna og eru báðar aðeins klæddar í æfingabuxur og topp.

Kim eignaðist dótturina North með rapparanum Kanye West á síðasta ári en hún hefur lést um tæp 23 kíló síðan þá. Hún var mikið á milli tannanna á fólki þegar hún gekk með North og var gagnrýnd af slúðurmiðlum vestan hafs fyrir að bæta mikið á sig. Hún lét það sem vind um eyru þjóta og gefur skít í útlitsdýrkunina í stjörnuheiminum.

Í október birti hún fræga mynd af sér í sundbol þar sem hún sýndi afrakstur strangs mataræðis og æfinga.

Vinkonurnar.
Sundbolamyndin fræga.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.