Erlent

MMA kappi drap mann í sjálfsvörn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ráðist á Joseph Torrez á heimili hans.
Ráðist á Joseph Torrez á heimili hans.
MMA bardagakappinn Joseph Torrez varð manni að bana á heimili sínu í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum er fjórir menn brutust inn til hans.

Mennirnir ruddust framhjá unnustu Torrez er hún opnaði hurðina inn á heimilið og ætluðu sér að ráðast á Joseph Torrez.

Torrez hafði lent í útistöðum við mennina á nýársnótt og ætluðu þeir að hefna fyrir það sem hafði áður gengið á milli þeirra.

Torrez, sem er vel þjálfaður í blönduðum bardagalistum, nýtti sér þá þjálfun þegar mennirnir réðust inn á heimili hans.

Einn þeirra lét lífið eftir áflogin og annar var fluttur á sjúkrahús alvarlega slasaður.

Unnusta Torrez, systir hennar og sonur Torrez voru öll á heimilinu þegar árásin var gerð.

Mennirnir fjórir eru allir hluti af alræmdri glæpaklíku í Bandaríkjunum.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×