Lífið

Jarre og Grier hittu borgarstjórann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dönsuðu hálf naktir fyrir framan Jón Gnarr.
Dönsuðu hálf naktir fyrir framan Jón Gnarr. mynd / skjáskot
Vine-stjörnurnar Jerome Jarre og Nash Grier hittu Jón Gnarr, borgarstjóra, í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.

Þessir hressu strákar gerðu allt vitlaust í Smáralind á sunnudaginn þegar nokkur þúsund ungmenni mættu í verslunarmiðstöðina til að hitta þá.

Jarre og Grier tóku upp heldur skemmtilegt Vine-myndband á fundi sínum með borgarstjóranum en myndbandið má sjá hér að neðan.

Þar dansa þeir á nærbuxunum einum fyrir framan Jón Gnarr en Margrét Gnarr, dóttir borgarstjórans, hleypir drengjunum inn á skrifstofuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.