Vilja ekki að fólki leiðist í leikhúsi 31. janúar 2014 09:30 Arnmundur Ernst Backman, Arndís Hrönn Egilsdóttir og Hjörtur Jóhann Jónsson. Fréttablaðið/GVA
Með burðarhlutverk í sýningunni fara þau Arndís Hrönn Egilsdóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson og Arnmundur Ernst Backman. Ljósmyndari Fréttablaðsins kom við á æfingu Bláskjás í gær og leikstjórinn var tekinn tali. Bláskjár fjallar um tvö systkini í Kópavogi sem hafa búið í kjallaranum hjá föður sínum síðustu sjö árin og lítið sem ekkert farið út. „En nú er kallinn dáinn og yngsti bróðirinn sem ólst upp á efstu hæðinni gerir sig líklegan til að taka við af föður sínum. Allt breytist þó þegar blá endurvinnslutunna frá Kópavogsbæ birtist óvænt á stofugólfinu,“ segir Vignir Rafn Valþórsson, leikstjóri verksins, um söguþráðinn. „Bláskjár er íslenskt gamandrama, með súrum keim, og fjallar um einlæga löngun tveggja systkina í Kópavogi, skammt frá Hamraborg, til að endurnýta sig og byrja lífið upp á nýtt. Reyndar fjallar það um sitthvað fleira, til dæmis feðraveldið, grimmdina, ofbeldið og veikburða getu okkar til þess að segja hvert öðru satt – og svo auðvitað Bláskjá og sígaunana,“ útskýrir Vignir, léttur í bragði og bætir við. „Bláskjár ætti að höfða sérstaklega til þeirra sem hafa áralanga reynslu af að láta sér leiðast í leikhúsinu og langar að breyta út af vananum.“ En æfingar hafa ekki gengið snurðulaust fyrir sig. „Leiðin er búin að vera löng og ströng. Útgáfan af handritinu sem nú er æfð á sviðinu er draft númer næstum-þriggja-stafa-tala,“ segir Vignir að lokum.
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira