Íslenskt viskí og gin væntanlegt á markað Gunnar Leó Pálsson skrifar 17. janúar 2014 09:00 F.v. Haraldur Þorkelsson stofnandi Eimverk Distillery, Eva María Sigurbjörnsdóttir, Sigrún Jenný Barðadóttir og Egill Gauti Þorkelsson vinna að framleiðslunni. fréttablaðið/gva „
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á áfengisframleiðslu og þá sérstaklega á viskíi. Ég er líka mjög hrifinn af hráefninu, íslenska byggið hentar mjög vel í áfengisframleiðslu,“ segir Haraldur Þorkelsson, stofnandi Eimverk Distillery, sem framleiðir Flóka viskí og Vor gin. Flóki, sem er íslenskt „single malt“ viskí eða öllu heldur íslenskur einmöltungur, er fyrsta framleiðsla á slíkri íslenskri afurð og þar með norðlægasti einmöltungurinn sem framleiddur er í heiminum. „Við byrjuðum að vinna að vöruþróun á Flóka fyrir um fimm árum og notum eingöngu íslenskt bygg frá Vallanesi til framleiðslunnar. Eimverk Distillery er síðan stofnað 2011 og framleiðsla hefst 2012, í fyrstu í mjög smáum stíl en við reiknum með að framleiða tíu til fimmtán þúsund lítra á þessu ári,“ útskýrir Haraldur. Fjórir vinna að þessu verkefni í dag, þau Egill Gauti Þorkelsson, sem er „master distiller“, Eva María Sigurbjörnsdóttir stýrir framleiðslunni, Sigrún Jenný Barðadóttir er rekstrarstjóri og Haraldur er framkvæmdastjóri. Sem stendur er eingöngu boðið upp á Flóka viskí á tunnu, til dæmis í sérpöntun hjá ÁTVR, og eins má fá Flóka beint af tunnu á Microbar, Dillon, Bravo og fleiri stöðum í miðbæ Reykjavíkur. „Fyrsta átöppun á flöskur í almenna sölu er áætluð síðar á þessu ári þar sem Flóki er ekki fullþroskaður enn, beint af tunnu er hugsað meira fyrir alhörðustu viskíáhugamenn.“ Í desemberframleiðslunni voru teknar frá tunnur sem verða fyrsta tíu ára átöppun fyrirtækisins og kemur þá á markað árið 2023.Haraldur Þorkelsson er stofnandi Eimverk Distillery sem framleiðir Flóka viskí og Vor gin.Fréttablaðið/gvaFlóki er meginframleiðsluvara Eimverks Distillery en fyrirtækið stóðst ekki mátið með bæði tæki og þetta frábæra íslenska hráefni í höndunum og hefur verið að þróa alíslenskt gin að undanförnu. „Ginið okkar heitir Vor og er það sem kallað er „Pot Distilled Gin“ sem er gin með gamla laginu, handlagað, úr lífrænu íslensku byggi, bragðbætt með íslenskum einiberjum og villtum kryddjurtum. Við erum verulega spennt fyrir þessari vöru sem kemur í sölu á næstu vikum. Vor er einstakt gin og íslenska byggið kemur sterkt í gegn, toppað með kryddi úr íslenskri náttúru,“ segir Haraldur. Undanfarin tíu ár hefur gengið mjög vel að rækta bygg á Íslandi og eru tækifærin sem fylgja þeirri velgengni mörg. „Tækifærin eru mörg og við stöndum vel að vígi, ég hef fundið fyrir miklum áhuga erlendis og við stefnum á erlendan markað sem allra fyrst.“ Hugmyndin að Flóka sem slík er ekki ný, íslenskur einmöltungur hefur verið draumur margra. „Hér eru allar aðstæður í dag ákjósanlegar fyrir viskíframleiðslu. Viskí hefur auk þess verið í mikilli sókn um allan heim. Skoskt viskí var til að mynda flutt út frá Skotlandi fyrir 4,27 milljarða punda og víða í löndunum í kringum okkur er viskíframleiðsla blómstrandi sprotagrein, til dæmis í Stauning í Danmörku.“
Mest lesið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Fleiri fréttir Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Sjá meira