As We Grow hrósað í blaðinu El Mundo Ugla Egilsdóttir skrifar 17. janúar 2014 08:00 Gréta Hlöðversdóttir, María Ólafsdóttir og Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir. Mynd/ Vigfús Birgisson
Í grein í blaðinu El Mundo var íslenska fyrirtækinu As We Grow hrósað fyrir að framleiða barnavörur úr alpakkaull í samstarfi við framleiðslufyrirtæki í Perú sem koma vel fram við starfsfólk sitt. As We Grow var talið upp með þremur öðrum fyrirtækjum sem framleiða líka barnavörur úr perúskri alpakkaull, eitt í New York, annað í Noregi og hið þriðja í París.Gréta Hlöðversdóttir er ein af stofnendum As We Grow. „Þessi fyrirtæki sem við höfum verið að vinna með hafa fengið viðurkenningar fyrir góðan aðbúnað og kjör starfsfólksins,“ segir Gréta. „Við erum frumkvöðlafyrirtæki, og grein eins og þessi í El Mundo skiptir miklu máli fyrir okkur. Hún vekur athygli á okkur, og mörg framleiðslufyrirtæki fengu áhuga á að vinna með okkur eftir umfjöllunina. Við stofnuðum fyrirtækið 2012 eftir hafa verið að þróa hugmyndirnar í tvö ár. Nú er starfsemin komin á fullt skrið, og við seljum á Íslandi og í fimm öðrum löndum.“ Starfsmenn As We Grow eru þrír. „Það er ég, sem er lögfræðingur, og síðan María Ólafsdóttir, sem lærði fatahönnun í Parsons í New York, og Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir, prjóna- og fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands,“ segir Gréta. Hugmyndin kviknaði út frá peysu sem mamma Guðrúnar prjónaði. „Peysan ferðaðist á milli barna í níu ár. Hún varð eiginlega uppáhalds flík allra – og er enn í notkun. Okkur fannst það skemmtileg pæling að föt gætu enst og gengið manna á milli, og vildum búa til svoleiðis föt fyrir börn. Þá þurfa gæðin að vera nægilega mikil til að fötin endist, og fötin þurfa einnig að vera þannig sniðin að þau vaxi með börnunum. Við erum ekki með þessar hefðbundnu stærðir, heldur eina stærð fyrir 6-18 mánaða gömul börn, aðra fyrir 8-36 mánaða, og svo fyrir 3-5 ára börn, og 6-8 ára börn.“
Mest lesið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Fleiri fréttir Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Sjá meira