Jay-Z kom, sá og sigraði heiminn Kjartan Atli Kjartansson skrifar 17. janúar 2014 13:30 Sviðsmyndin var stórkostleg á tónleikunum. Jay-Z var magnaður, sem og allir gestir hans. „
Leyfið mér að vera stórkostlegur…mér líður eins og Cassius Clay,“ ómar í hljóðkerfinu eftir að ljósin slökkna. Svart myrkrið verður skyndilega fórnarlamb ljósasýningar á sviðinu. Hinn 44 ára gamli Jay-Z gengur inn á sviðið svartklæddur með derhúfu og gullkeðju. Lagið You Don‘t Know hefur aldrei hljómað svona vel. Í textanum er Jay-Z að láta hlustendur vita hversu merkilegur hann er. „Þið eruð að horfa á 40 milljóna manninn,“ segir hann og vísar til þess hversu margar plötur hann hefur selt. Lagið kom út árið 2001 og textinn er í raun úreltur. Nú hefur Jay-Z selt 75 milljón plötur, fengið 17 Grammy-verðlaun og er af mörgum talinn besti rappari heims. Hann lýgur því ekki þegar hann kallar yfir áhorfendur, í lok lagsins:Timbaland stóð sig frábærlega á tónleikunum, var algjörlega magnaður.„Ég mun aldrei tapa" Jay-Z er sannkallaður sigurvegari. Enginn verður óbarinn biskup; Útistöðurnar sem hann hefur lent í eru ófáar. Nas, Mobb Deep og fleiri listamenn hafa orðið fyrir barðinu á Jay-Z á leið hans á toppinn. Þegar hann gengur léttur á fæti um sviðið má merkja sjálfstraust í hverju skrefi. Hann snýr sér að áhorfendum og býr til merki plötufyrirtæki síns, Roc-A-Fella Records með höndunum. Áhorfendur gera slíkt hið sama, allir dansandi í takt. Jay-Z fer úr jakkanum sínum. Undir honum er bolur merktur hönnuðinum Tom Ford. Hann kynnir hinn geysivinsæla Timbaland til leiks. Þeir hafa unnið saman fjölda laga. Þeir unnu fyrst saman árið 1998 og eru enn að. Jay-Z heldur áfram að skemmta áhorfendum. Hann tekur lög af nýjustu plötu sinni, Magna Carta, Holy Grail. Hún hefur farið sigurför um heiminn en verður fyrst og fremst minnst fyrir viðskiptahæfileika Jay-Z. Hann seldi Samsung eiua milljón eintaka áður en platan kom út, hún fylgdi með ákveðnum gerðum af Samsung snjallsímum. Þetta er eitt dæmið um hversu snöggur Jay-Z er að aðlagast breyttum aðstæðum á markaðinum.Jay-Z og Beyoncé eru sannarlega magnað par og eiga saman dótturina Blue Ivy.„Blue bað mig að minna ykkur á að ég er maðurinn" Líf Jay-Z, sem heitir réttu nafni Sean Carter, breyttist þegar hann eignaðist barn með söngkonunni Beyoncé. Dóttirin var skírð Blue Ivy Carter og hafa margir keppst við að reyna að ráða í merkingu nafnsins. Talið er að nafnið Blue komi úr titli Blueprint sem er af mörgum talin besta plata Jay-Z. Millinafnið Ivy er svo talið tengjast tölunni fjórum, en eins og margir vita er IV í rómverska talnakerfinu 4. Fyrstu tveir stafirnir í millinafninu virðast því hafa ráðið nafninu. Talan fjórir er gríðarlega merkileg í lífi Beyoncé, hún á sjálf afmæli 4. september og móðir hennar 4. janúar. Hún segir þetta vera sína uppáhaldstölu. Jay-Z fjallar um lífið eftir fæðinguna í laginu Holy Grail og ómar söngur Justins Timberlake um salinn og tuttugu þúsund manns taka undir. Hann er þó ekki á staðnum. En stuttu seinna röltir leynigestur á sviðið. Allt tryllist. Skyrtan óhneppt Rick Ross mætti óvænt á sviðið, með skyrtuna flakandi frá.„Þið vitið að ég er með þetta" Rapparinn Rick Ross geltir í hljóðnemann og gengur rólega inn á sviðið. Þessi íturvaxni rappari er með skyrtuna óhneppta; óhræddur við að sýna vömbina, gullkeðjurnar og húðflúrin. Með sólgleraugu og svægi. Fagnaðarlætin eru gríðarleg, enda tónleikarnir nálægt heimaslóðum Rick Ross sem slegið hefur í gegn og hefur unnið með stærstu listamönnum heims, eins og Lady Gaga. Félagarnir hafa unnið mikið saman undanfarið, eru nýbúnir að ljúka við sitt sjötta lag. Þeir taka lagið umdeilda FuckWithMeYouKnowIgot it. Langur titillinn vísar til viðlagsins sem Rick Ross rappar af sinni alkunnu taktfestu. Samstarf þeirra Jay-Z endurspeglar viðskiptavit hins síðarnefnda. Hann er duglegur að vinna með listamönnum sem eru á uppleið og hefur þannig náð að viðhalda sínum eigin vinsældum og ná til nýrra og yngri markhópa. Kanye West, Pharrell Williams og Drake eru meðal listamanna sem Jay-Z hefur unnið með. Menn sem hafa náð langt. Hann tekur síðan lagið N*ggas in Paris, sem hann gerði einmitt með Kanye West. Hann biður áhorfendur um að standa uppi á sætum sínum. Hann segist hafa fengið sekt fyrir að hvetja fólk til þess annars staðar, en honum sé sama. Hann vilji að fólkið skemmti sér. Magna Carta, Holy Grail kom út árið 2013 og seldi Jay-Z fimm milljónir eintaka áður en hún kom út til Samsung.„Látnir forsetar endurspegla mig" Jay-Z fer hratt yfir sögu á tónleikum, tekur það besta úr mörgum lögum sínum. Að syrpunni lokinni róar hann salinn og tekur gamlan slagara, Dead Presidents. Í viðlaginu óma orðin „látnir forsetar endurspegla mig“. Látnir forsetar eru slangur yfir peningaseðla og vísar viðlagið því í gildismat Jay-Z. Lagið var eitt af þeim vinsælli á fyrstu plötu hans, Reasonable Doubt, sem kom út árið 1996, fyrir um 18 árum. Jay-Z hefur verið lengur að. Á annarri erminni á bolnum hans eru rómversku tölurnar XXV sem vísa líklega til þess að um 25 ár eru liðin frá árinu 1988, sem Jay-Z hefur nefnt í textum sínum sem mikilvægt ár í hans lífi, en þá segist hann hafa verið að selja eiturlyf. Vinsamlegast fylgið leiðtoga ykkar Jay-Z skeiðar um sviðið, frár á fæti. Í raun er ótrúlegt að hann hafi gert þetta í um tvo áratugi. Hann tekur helstu lögin af löngum ferli sínum og tvinnar saman þau og lögin af nýjustu plötunni. Inni á milli fá tónlistarmennirnir sem spila undir að sýna sig. Timbaland tekur syrpu af sínum bestu lögum og trommarinn frægi Tony Royster Jr tekur hreinlega magnað trommusóló sem endar með því að hann kastar kjuðunum frá sér og trommar með hnefunum. Hann hefur verið frægur frá barnsaldri og þykir með þeim betri í heiminum á sínu sviði. Jay-Z endar með laginu Run this town, sem fjallar, eins og svo mörg önnur lög hans, um eigið ágæti. Hann segist vera frelsarinn endurborinn og biður fólk að fylgja sér, hann sé þeirra leiðtogi. Hann gengur af sviðinu og ljósin slökkna. En þetta er allt hluti af dagskránni. Allir gestirnir vita hvað er í gangi og byrja að kalla nafn hans í gríð og erg. Margir telja að nafn dóttur Jay-Z sé komið fra titli plötunnar Blueprint.„Viljiði meira?" Jay-Z snýr aftur og tekur að sjálfsögðu lagið Encore, sem þýðir uppklapp. Lagið er samið einmitt fyrir þessar aðstæður. Jay-Z leikur sér með rapptæknina, fer inn og út úr takti viljandi og sýnir kunnáttu sína í faginu. Enda fáir sem standast honum snúning. Hann snýr sér svo að áhorfendum og hægir á stemningunni. Rólegt og lágstemmt stef ómar undir og á meðan gefur rappstjarnan sér tíma til þess að ræða við fólkið í salnum. Hann beinir myndatökumönnum að ákveðnum aðilum í salnum sem honum finnst í flottum fötum, eða hafa verið duglegir að syngja með. Salurinn klappar fyrir þeim sem Jay-Z hrósar. Hann ávarpar svo allan skarann: „Þar sem þið hafið verið svo dugleg að láta mér líða eins og ég sé heima hjá mér, ætla ég að fara með ykkur á mínar heimaslóðir.“ Lögin Empire State of Mind og Hard Knock Life hreinlega trylla fólkið. Að þeim loknum þakkar hann fólki fyrir að mæta. „Ég veit að það getur verið erfitt að koma á tónleika. Sumir koma langt að, aðrir þurfa að redda pössun eða fá frí í vinnunni. Ég er afar þakklátur,“ segir hann einlægur, greinilega jarðbundinn. Síðan biður hann áhorfendur um að kveikja á símunum sínum og ljósamenn að slökkva ljósin. Mynd af Nelson Mandela birtist á risaskjáum. Lagið Forever Young er tekið í hans minningu og allir syngja með. Stórkostleg stund sem væntanlega fæstir viðstaddra munu nokkurn tíma gleyma.
Mest lesið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Lífið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Ástin kviknaði á Humarhátíð Lífið „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Lífið Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið Rúrik nældi sér í suðræna Sóleyju Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Lífið Fleiri fréttir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Sjá meira