Aðskilnaðurinn verður erfiður Ellý Ármanns skrifar 17. janúar 2014 11:00 "Ég verð þar í sex vikur og enda á að vinna við tískuvikuna í París sem stendur yfir frá 25. febrúar til 7. mars,“ segir Manuela. mynd/einkasafn manuelu
Manuela Ósk Harðardóttir fer til Frakklands á vegum Listaháskóla Íslands eftir viku þar sem hún stundar nám í fatahönnun. Ferðinni er heitið til Parísar þar sem hún mun starfa í tískuhúsi franska fatahönnuðarins Soniu Rykiel. Manuela ætlar að fara án barnanna því hún vill ekki taka þau úr skóla og trufla rútínuna þeirra. „Við þurftum að senda út möppu og ferilskrá fyrir starfsnámið úti en öllum nemendum á fyrsta ári í fatahönnun LHÍ stendur þetta til boða sem er frábært því svona lærlingsstöður eru mjög eftirsóttar og samkeppnin mikil og hörð,“ segir Manuela. „Námið hér heima gengur mjög vel enda legg ég mig alla fram. Það er auðvitað ákveðin kúnst að púsla saman barnauppeldi, heimilishaldi og háskólanámi. Mér finnst bara svo gaman í skólanum og þá verður einhvern veginn allt svo miklu auðveldara.“Manuela ásamt bekkjarsystrum sínum í fatahönnun - Sóley Jóhannsdóttir, til vinstri, og Björg Gunnarsdóttir. Einstakt tækifæri „Það eru mjög spennandi tímar framundan og ég lít á þetta sem einstakt tækifæri. Sonia Rykiel, Acne, Gaspard Yurkevitch, Sharon Wouchob, Yaz Bukey og PR fyrirtækið Totem Fashion eru þau fyrirtæki sem tóku við nemendum þetta árið og það er Linda Björg Árnadóttir sem sér um þetta allt og ákveður hver fer hvert. Mér finnst ég mjög heppin og ég veit að þessi reynsla mun nýtast mér ómetanlega í framtíðinni - bæði í námi og starfi.“ „Ég flýg út eftir viku, með bekkjarsystur minni, Sóley Jóhannsdóttur. Við ætlum að búa saman tvær og erum búnar að leigja fallega litla íbúð. Þetta verður þvílíkt ævintýri.“Börnin heimaManuela á tvö börn, Jóhann 9 ára og Elmu 3 ára. Fara börnin með þér til Parísar? „Ég ákvað að fara þetta ein og taka börnin ekki með. Við getum þó ekki hugsað okkur sex vikna aðskilnað þannig að þau munu koma út til mín í heimsókn. Mér fannst ekki rétt að rífa þau úr skóla og rútínu þar sem ég mun að öllum líkindum vinna langa vinnudaga og hafa lítinn frítíma. Það er því mun betra að þau séu heima, í dekri hjá ömmum og langömmum.“ Hvað með námskostnað. Tekur þú námslán? „Nei ég tek ekki námslán en jú þetta er auðvitað mjög kostnaðarsamt allt saman - en vel þess virði. Við fljúgum með flugfélaginu Wow en þau voru svo almennileg að styðja okkur. Við Sóley munum blogga á heimasíðunni þeirra á Wow.is - en ég ætla líka að opna persónulega bloggsíðu í næstu viku á slóðinni Manuelaosk.is fyrir fjölskylduna mína og vini, og auðvitað alla sem vilja lesa.“
Mest lesið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Fleiri fréttir Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Sjá meira