Borðar jólamatinn í lok janúar Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 8. janúar 2014 07:30 Vilborg hitti leik- og söngkonuna Höllu Vilhjálmsdóttur á Vinson Massif og segir hana hörku fjallageit. Mynd/Einkasafn „
Ég er stödd í fjörutíu stiga hita í Mendoza í Argentínu. Félagar mínir hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum, með Leif Örn Svavarsson fremstan í flokki, koma á svæðið í dag og þá hefjum við leiðangur á næsta fjall, Aconcagua. Það verður þá minn fimmti tindur ef allt gengur að óskum. Á morgun þurfum við að ganga frá ýmsum leyfum og síðan leggjum við af stað,“ segir pólfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir. „Aconcagua er oft vanmetinn af því að hann er ekki tæknilega erfiður en gríðarlega hár. Hann er tæpir sjö þúsund metrar og það er alltaf áskorun að fara í svona hæð. Um helmingur sem leggur af stað kemst ekki upp.“ Vilborg eyddi jólunum í að klífa Vinson Massif, hæsta tind Suðurskautslandsins og hefur eytt síðustu tíu dögum í að ferðast á milli staða og hvíla sig fyrir næstu átök. „Það var ótrúleg upplifun að klífa Vinson Massif. Það var frekar kalt eins og gefur að skilja og nú er ég að upplifa um áttatíu stiga hitamun. Það var æðislegt að koma til baka á suðurskautið og fékk ég stórkostlegar móttökur enda kynntist ég mörgum í fyrra. Landslagið er svo stórkostlegt að það er eiginlega ekki hægt að lýsa því. Það er margt við tindinn sem er exótískt þó hann sé ekki tæknilega erfiðastur en það er margt í kringum hann sem eykur á upplifunina,“ segir Vilborg. Þetta eru önnur jólin í röð sem hún eyðir á suðurskautinu. „Ég missi af jólahefðunum og öðru en ég fæ svo margt í staðinn. Ég hef haft það þannig að ég fæ smá jólamat þegar ég kem heim,“ segir Vilborg, sem kemur til Íslands 28. janúar ef allt fer samkvæmt áætlun. Þá hefur hún verið á rúmlega sex vikna ferðalagi og vonandi búin að ná toppnum á tveimur tindum. Þá á hún tvo tinda eftir af tindunum sjö - Kilimanjaro og Everest.
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira