Sýna síðkommúníska nostalgíu í kvöld Þórður Ingi Jónsson skrifar 23. október 2014 12:30 Alvöru þorpsbúar leika í The Postman's White Nights.
Rússneskir kvikmyndadagar hefjast í dag í Bíói Paradís og standa til 27. október. Rjómi rússneskrar kvikmyndagerðar nútímans verður sýndur en allar myndirnar eru verðlaunamyndir. Frítt er inn á opnunarmyndina í kvöld kl. 18.00 en um er að ræða myndina The Postman's White Nights. Myndin fjallar um guðsvolað þorp í Rússlandi og er lýst sem „síðkommúnískri nostalgíu með vodkabragði“. Handritið er byggt á sönnum sögum og er notast við alvöru þorpsbúa sem leika í myndinni. Leitin að aðalleikaranum tók meira en ár. Myndin hlaut Silfurljónið fyrir bestu leikstjórn auk Green Drop-verðlaunanna á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í ár. Stórmyndin Leviathan verður einnig sýnd en hún var útnefnd framlag Rússlands til Óskarsverðlaunanna í ár. Sagan er byggð á Jobsbók Biblíunnar en myndin tekst á við spillingu og kúgun í Rússlandi. Athygli vekur að myndin var fjármögnuð að hluta til af menningarmálaráðuneyti Rússlands en framleiðandi myndarinnar hefur sagt að ólíklegt sé að leikstjóri myndarinnar muni fá slíkan styrk aftur. Einnig verður hægt að sjá myndirnar Angels of Revolution, sem fjallar um nokkra framúrstefnulistamenn í Rússlandi eftir að kommúnisminn tók völdin, Two Women sem er byggð á frægu leikriti Ivans Turgenjev og White Reindeer Moss sem byggð er á tveimur bókum eftir frægasta rithöfund af þjóðflokki Neneta í Norður-Rússlandi, Önnu Nerkagi.
Mest lesið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Lífið Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Leikjavísir Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Fleiri fréttir Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið Sjá meira