Opið bréf til forstjóra Sjúkratrygginga Írís Stefánsdóttir sálfræðingur skrifar 23. október 2014 07:00 Ágæti Steingrímur Ari. Rammasamningur milli Sjúkratrygginga Íslands og sálfræðinga á að gera börnum sem glíma við geðrænan vanda kleift að fá niðurgreidda sálfræðiþjónustu hjá sjálfstætt starfandi sálfræðingum. Í umræðu um skort á framboði, takmarkað þjónustuaðgengi og biðlistavanda í geðheilbrigðisþjónustu vil ég sjá þennan samning betur nýttan til handa börnum sem þurfa á sálfræðiþjónustu að halda. Sem stendur nýtist hann að mjög takmörkuðu leyti þar sem aðeins fimm sálfræðingar á landinu eru á samningi. Af þessu leiðir að fá börn njóta þjónustunnar. Gera þarf verulega bragarbót á rammasamningi þannig að fleiri sálfræðingar fáist til aðildar að honum og hægt verði að líta á niðurgreidda sálfræðiþjónustu sem gildandi meðferðarkost í geðheilbrigðisþjónustu við börn.Einhliða ákvarðanir Rammasamningur tók gildi 1.janúar 2008. Frá upphafi samnings hafa Sjúkratryggingar einhliða ákveðið nánar um framlengingar og gjaldskrárhækkanir án nokkurs samráðs við sálfræðinga. Útkoman er lág gjaldskrá sem gerir að verkum að aðeins fimm sálfræðingar á landinu eru með aðild að samningi. Algengt viðtalsgjald hjá sjálfstætt starfandi sálfræðingum sem starfa með börnum mun vera um það bil 40% hærra en sálfræðiviðtal í rammasamningi. Þá er gjaldskrá Sjúkratrygginga fyrir viðtal hjá barnageðlækni um 90% hærri en sálfræðiviðtal í rammasamningi. Sálfræðingar sem starfa á samningi þurfa að uppfylla strangar faglegar kröfur um menntun og reynslu ásamt því að fara í gegnum sérstakt umsóknarferli til að fá aðild samþykkta. Það verður því ekki séð að samræmi sé á milli hæfniskrafna og þeirra launa sem Sjúkratryggingar bjóða sálfræðingum. Ég tók ákvörðun um að sætta mig tímabundið við lág laun samningsins þar sem ég tel að það eigi að vera sjálfsögð mannréttindi í samfélagi sem okkar, að börn hafi sömu möguleika á niðurgreiddri heilbrigðisþjónustu hjá sálfræðingi og t.d. barnageðlækni eða barnalækni, óháð vanda eða sjúkdómi. Til þess að svo verði, hlýtur að þurfa að hækka gjaldskrána og fá þannig fleiri sálfræðinga til starfa á samning. Ennfremur þarf að opna betur á aðgengi að þjónustunni og þá sérstaklega fyrir þau börn sem hafa ekki möguleika á þjónustu hjá opinberum stofnunum eins og sálfræðiþjónustu skóla, Þroska- og hegðunarstöð Heilsugæslunnar (ÞHS), Barna- og Unglingageðdeild (BUGL), Greiningar- og Ráðgjafarstöð (GRR), og heilsugæslustöðvum.Fleiri meðferðarkosti Eins og staðan er í dag hafa aðeins þau börn möguleika á niðurgreiddri sálfræðiþjónustu sem hafa farið í gegnum langa biðlista og þjónustu á ÞHS, BUGL, GRR eða Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Ég fæ ekki séð gagnsemi þess að nýta rammasamninginn til þess að veita viðbótarmeðferð fyrir hóp barna sem þegar hefur fengið þverfaglega meðferð á meðan ákveðinn hópur barna á mjög erfitt með að komast að í opinberri geðheilbrigðisþjónustu. Opinbera kerfið er fyrir löngu sprungið og tala biðlistarnir þar sínu máli. Það verður að ráða bót á þessum vanda og bjóða fleiri meðferðarkosti eins og niðurgreidda sálfræðiþjónustu hjá sjálfstætt starfandi sálfræðingum. Aðgengið á að vera það sama og aðgengi að barna- og barnageðlæknum, börnin okkar eiga rétt á því. Eðlilegast væri að heilsugæslur, barna- og barnageðlæknar og sérfræðiþjónusta skóla gætu til viðbótar við fyrrgreindar stofnanir vísað börnum í niðurgreidda sálfræðiþjónustu. Ég vil fara þess formlega á leit við Sjúkratryggingar Íslands að rammasamningur verði tekinn til gagngerðrar endurskoðunar og að þegar í stað hefjist samningavinna við Sálfræðingafélag Íslands. Grundvallaratriði eru að hækka gjaldskrá og opna á aðgengi svo sem tilvísanir frá áðurnefndum aðilum. Fyrst þá fer rammasamningur um niðurgreidda sálfræðiþjónustu fyrir börn að nýtast fleiri börnum og skila sér í bættri líðan og geðheilsu þessa mikilvægustu og viðkvæmustu þegna samfélags okkar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Skoðun Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun