Skömminni skilað til síns heima Valgerður Þ. Jónsdóttir skrifar 23. október 2014 10:30 Brynja Bragadóttir stofnaði ráðgjafarstofu ásamt Hildi Jakobínu Gísladóttur um stjórnun og vinnusálfræði. Fréttablaðið/ernir
Taktu stökkið er yfirskrift tveggja daga vinnustofu fyrir þolendur eineltis á vinnustöðum, sem Brynja Bragadóttir og Hildur Jakobína Gísladóttir hjá fyrirtækinu Officium ráðgjöf bjóða upp á í næsta mánuði. Markmiðið er að fræða þátttakendur um vinnustaðaeinelti, áhrif þess á líðan þeirra og heilsu og ekki síst að kynna þeim leiðir til að takast á við slíkar aðstæður, „skila skömminni þangað sem hún á heima“, eins og þær segja. „Þolendur eiga oft erfitt með að tjá sig um líðan sína eða leita sér ráðgjafar. Þeir ímynda sér að enginn annar sé í sömu sporum og eru hræddir við að afhjúpa tilfinningar sínar og vanlíðan fyrir öðrum. Fagleg ráðgjöf getur flýtt batanum í kjölfar eineltis,“ segir Brynja. Vinnustofan er ekki byggð upp eins og hefðbundið námskeið með einhliða fræðslu heldur er meiningin að þátttakendur, að hámarki fimmtán manns, tali saman og deili reynslu sinni hverjir með öðrum. Brynja og Hildur Jakobína sjá svo vitaskuld um fræðsluþáttinn, stýra og taka þátt í umræðum og eru þátttakendum til leiðsagnar. Þær leggja ríka áherslu á að fullkomnum trúnaði sé heitið, og sjá fyrir sér að í kjölfar vinnustofunnar haldi þátttakendur áfram að hittast og styðja hver annan. Að sögn Brynju er vinnustaðaeinelti meira vandamál en fólk gerir sér almennt grein fyrir og í rauninni enn þá hálfgert tabú hér á landi. Í Bandaríkjunum sé hins vegar algengt að fólk sem upplifi einelti á vinnustað leiti sér fræðslu og stuðnings hjá sérfræðingum og standi sjálft fyrir stuðningsfundum. „Við notum þá skilgreiningu í vinnu okkar að einelti sé endurtekin neikvæð háttsemi sem beinist að einum eða fleiri starfsmönnum og ógni heilsu þeirra og öryggi. Það er gríðarlega mikilvægt að uppræta einelti hvar sem það birtist og ekki síst á vinnustöðum, þar sem það er oft dulið og/eða látið afskiptalaust. Einelti er alltaf ofbeldi sem hefur ekki bara áhrif á þolendur heldur líka neikvæð áhrif á aðstandendur og starfsanda á vinnustöðum,“ segir Brynja. „Afköst starfsmanna og ímynd fyrirtækjanna eru líka í húfi,“ bætir hún við.
Tengdar fréttir Sigurganga Salóme Heimildarmynd sem Yrsa Roca Fannberg gerði um móður sína, veflistakonuna Salóme E. Fannberg, hefur unnið til verðlauna á þremur kvikmyndahátíðum. 18. október 2014 13:00 Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira
Sigurganga Salóme Heimildarmynd sem Yrsa Roca Fannberg gerði um móður sína, veflistakonuna Salóme E. Fannberg, hefur unnið til verðlauna á þremur kvikmyndahátíðum. 18. október 2014 13:00