Lífið

Keypti þakíbúð á tæpa þrjá milljarða

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Jennifer Lopez er búin að kaupa þakíbúð í New York samkvæmt vefsíðunni Refinery29. Kostaði íbúðin um 22 milljónir dollara, tæpa þrjá milljarða króna.

Þakíbúðin er í Whitman-byggingunni í Flatiron-hverfinu á Manhattan og er búin fjórum svefnherbergjum og sex baðherbergjum. Þá fylgir henni einnig gríðarstórt útisvæði með útsýni yfir Madison Square-garðinn.

Samkvæmt Refinery29 er Jennifer nú orðin nágranni forsetadótturinnar Chelsea Clinton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×