Stofnanavætt ofbeldi gagnvart fötluðum konum Helga Baldvins og Bjargardóttir skrifar 25. nóvember 2014 11:17 Kynbundið ofbeldi er ein stærsta heilsufarsógn kvenna hvar sem er í heiminum. Fatlaðar konur er í enn meiri áhættu á að verða fyrir slíku ofbeldi. Er það eðlileg afleiðing þess að vera með skerðingu eða sjúkdóm eða er eitthvað í umhverfinu eða menningunni sem ýtir undir að sumir hópar samfélagsins verða fyrir meira ofbeldi en aðrir? Í maí á þessu ári buðu Stígamót Kerstin Kristensen hingað til lands að fjalla um ofbeldi gagnvart fötluðum konum. Fyrirlestrar hennar voru áhrifaríkir og stuðandi. Hún sagði okkur hvernig kona með sykursýki var stundum látin velja á milli þess að totta manninn sinn eða fá adrenalín sprautuna sína. Hann beitti hana kynferðisofbeldi með því að nýta sér sjúkdóm hennar svo hún þurfti að velja milli lífs og dauða. Kerstin sagði okkur líka frá konunni sem var í hjólastól en var alltaf að lenda á spítala eftir að hafa hrasað um og dottið. Þegar maðurinn hennar, sem einnig var í hjólastól, féll frá, hætti konan skyndilega að lenda inn á spítala. Það datt engum í hug að fatlaður maður gæti verið að beita fatlaða konu sína ofbeldi. Kerstin sýndi okkur einnig tvær stuttmyndir af fimm sem allar fjalla um mismunandi ofbeldi gagnvart ólíkum hópum af fötluðum konum. Þessar áhrifaríku stuttmyndir segja meira en mörg orð og eru til þess fallnar að vekja fólk til umhugsunar um stöðu fatlaðra kvenna í samfélaginu. Ofbeldi snýst um misbeitingu valds. Ofbeldismenn njóta þess að hafa stjórn og niðurlægja aðra til að upphefja sjálfa sig. Við búum í samfélagi sem skapar kjöraðstæður fyrir ofbeldismenn til að herja á og níðast á fötluðum konum. Skortur á nauðsynlegri þjónustu, og skortur á því að hafa eitthvað um það að segja hver veitir þjónustuna, hvenær eða hvernig, býr til valdaójafnvægi sem þarf ekki að vera til staðar. Í kvöld kl. 20:00 mun Stígamót standa fyrir bíókvöldi þar sem allar fimm stuttmyndirnar verða sýndar. Sýningartíminn er um hálftími og verður boðið upp á umræður eftir hverja mynd. Verið hjartanlega velkomin! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Sjá meira
Kynbundið ofbeldi er ein stærsta heilsufarsógn kvenna hvar sem er í heiminum. Fatlaðar konur er í enn meiri áhættu á að verða fyrir slíku ofbeldi. Er það eðlileg afleiðing þess að vera með skerðingu eða sjúkdóm eða er eitthvað í umhverfinu eða menningunni sem ýtir undir að sumir hópar samfélagsins verða fyrir meira ofbeldi en aðrir? Í maí á þessu ári buðu Stígamót Kerstin Kristensen hingað til lands að fjalla um ofbeldi gagnvart fötluðum konum. Fyrirlestrar hennar voru áhrifaríkir og stuðandi. Hún sagði okkur hvernig kona með sykursýki var stundum látin velja á milli þess að totta manninn sinn eða fá adrenalín sprautuna sína. Hann beitti hana kynferðisofbeldi með því að nýta sér sjúkdóm hennar svo hún þurfti að velja milli lífs og dauða. Kerstin sagði okkur líka frá konunni sem var í hjólastól en var alltaf að lenda á spítala eftir að hafa hrasað um og dottið. Þegar maðurinn hennar, sem einnig var í hjólastól, féll frá, hætti konan skyndilega að lenda inn á spítala. Það datt engum í hug að fatlaður maður gæti verið að beita fatlaða konu sína ofbeldi. Kerstin sýndi okkur einnig tvær stuttmyndir af fimm sem allar fjalla um mismunandi ofbeldi gagnvart ólíkum hópum af fötluðum konum. Þessar áhrifaríku stuttmyndir segja meira en mörg orð og eru til þess fallnar að vekja fólk til umhugsunar um stöðu fatlaðra kvenna í samfélaginu. Ofbeldi snýst um misbeitingu valds. Ofbeldismenn njóta þess að hafa stjórn og niðurlægja aðra til að upphefja sjálfa sig. Við búum í samfélagi sem skapar kjöraðstæður fyrir ofbeldismenn til að herja á og níðast á fötluðum konum. Skortur á nauðsynlegri þjónustu, og skortur á því að hafa eitthvað um það að segja hver veitir þjónustuna, hvenær eða hvernig, býr til valdaójafnvægi sem þarf ekki að vera til staðar. Í kvöld kl. 20:00 mun Stígamót standa fyrir bíókvöldi þar sem allar fimm stuttmyndirnar verða sýndar. Sýningartíminn er um hálftími og verður boðið upp á umræður eftir hverja mynd. Verið hjartanlega velkomin!
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun