Sex manna fjölskylda óvænt í auglýsingu Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 11. desember 2014 12:00 Gunnar segir vel hafa tekist til við það að festa daglegt líf fjölskyldunnar á filmu. Vísir/stefán
Gunnar Svanberg ljósmyndari og fjölskylda hans voru óvænt fengin til þess að leika aðalhlutverk í auglýsingu fyrir Símann. „Ég fór til Elite að leita að módelum og fékk símhringingu daginn eftir og var beðinn um að koma á fund. Á fundinum voru allir svo sposkir á svipinn að ég hélt að við værum að fara að mynda einhver svakaleg „celebrities“ en datt ekki í hug að ég væri að fara á fund um verkefni sem sneri eitthvað að okkur,“ segir Gunnar. Hann og kona hans, Ingunn Dögg Sindradóttir, eiga fjögur börn, Sindra, Sölku Dögg, Kormák Breka og Kolku Kristbjörgu. „Þeir voru með okkur í fjóra daga og reyndu að elta líf fjölskyldunnar. Það vantar auðvitað alltaf eitthvað inn í þetta, tómstundir hjá krökkunum og svona. En þetta nokkurn veginn nær yfir eðlilega rútínu,“ segir hann en börnin létu veru fjölmenns liðs tökumanna á heimilinu lítið á sig fá. „Þeim fannst þetta mjög gaman, þau hafa verið hjá mér í einhverju auglýsingatengdu. Þau eru ekkert óvön myndavélinni þannig að þau kipptu sér rosalega lítið upp við þetta.“ Auglýsinguna segir hann skemmtilega viðbót í myndaalbúm fjölskyldunnar. „Það sem mér fannst svolítið spennandi í þessu var hvað við sem fjölskylda erum að eignast góða minningu. það verður gaman að eiga þetta þegar við verðum eldri og hlæja að þessu saman.“ Tökuliðið var með fjölskyldunni nánast allan sólarhringinn í fjóra daga. „Það var bara rétt svo að vekjaraklukkan hafi náð að hringja þegar dyrabjallan glumdi,“ segir Gunnar léttur í bragði og tekur fram að lítið hafi farið fyrir tökuliðinu sem sneið handritið í kringum dagskrá og tómstundir fjölskyldunnar. Í auglýsingunni sjást börnin í ballett, við píanóæfingar og í básúnutíma. Gunnar segir auglýsinguna gefa raunsæja mynd af daglegu lífi fjölskyldunnar en bætir við að oft sé meiri ys og þys. „Þetta eru oft ansi mikil hlaup, maður er alltaf að fara á svo marga staði.“ Auglýsingin var tekin upp af True North í samstarfi við auglýsingastofuna ENNEMM.
Mest lesið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Fleiri fréttir Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Sjá meira