Börnin fá að hafa hátt Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 1. nóvember 2014 09:15 Við erum með Vökudaga hér á Skaganum alla vikuna og því eru stöðugir viðburðir í bænum,“ segir Halldóra. „
Sýning frá löngu og farsælu starfi safnsins er komin upp en við opnum hana formlega 6. nóvember og þá verður afmælisdagskrá um kvöldið,“ segir Halldóra Jónsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Akraness. Safnið rekur upphaf sitt til stofnunar Lestrarfélags á Akranesi 6. nóvember 1864 og er því 150 ára þann mánaðardag í ár. „En við erum með Vökudaga hér á Skaganum alla vikuna og því eru stöðugir viðburðir í bænum,“ segir Halldóra. Af þeim sem eru á safninu nefnir hún afmælishátíð fyrir krakka í dag milli klukkan 11 og 14. „Viðburðurinn heitir Fjör og læti, við erum búin að útbúa samkvæmisleiki fyrir börnin og leyfum þeim að hafa hátt á safninu, aldrei þessu vant.“ Á mánudaginn verður bókmenntakvöld sem Sigurbjörg Þrastardóttir stýrir. „Rithöfundarnir tengjast allir Skaganum,“ segir Halldóra. „Þeir eru Orri Harðarson, sem er uppalinn hér, Kristín Steinsdóttir, sem bjó hér í mörg ár, og Ari Jóhannesson læknir, sem er búsettur hér. Sigurbjörg ætlar líka að lesa úr nýútkominni ljóðabók sinni og svo er Þorgrímur Þráinsson með nýja unglingabók, hann er jú Vestlendingur.“ Halldóra segir nokkrar konur hafa setið sveittar undanfarið við að hekla dúllur sem eiga að verða 150 og mynda listaverk á safninu. „Dúllustundin er á þriðjudag,“ segir hún. „Þá fáum við líka prjónagraffara í heimsókn sem opnar örugglega nýjar víddir fyrir handavinnufólk.“Listaverk úr hekluðum dúllum er að verða til, afmælisbarninu til heiðurs.Fyrst var safnið á Görðum. Það helgaðist af því að þar var guðshús Skagamanna og íbúarnir náðu sér í bækur um leið og þeir sóttu kirkju, að sögn Halldóru. En hvað skyldi bera hæst á sögusýningunni? „Í heiðurssessi eru fyrstu lög og útlánareglur lestrarfélagsins. Allir bókatitlar voru skrifaðir á blað og síðan var merkt við hverjir tóku. Hverjar voru vinsælastar? Það voru Íslendingasögurnar og rímur, Skuggasveinn, Þúsund og ein nótt, Sögur herlæknisins og bækur Jóns Thoroddsen, Piltur og stúlka og Maður og kona. Það var ekki mikið úrval af skemmtisögum til en þessar bækur voru meira teknar en guðfræði-og garðyrkjuritin.“ Halldóra segir safnið hafa brunnið að miklu leyti árið 1946 en tveimur árum síðar hafi einkasafn Guðmundar G. Hagalín verið keypt. „Það er stofninn að því safni sem hér er í dag.“ Sýningin í Bókasafni Akraness stendur út árið og er opin á afgreiðslutíma safnsins.
Mest lesið Eurovision-vaktin: Stemningin sjaldan verið minni Lífið Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Lífið Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Lífið Best klæddu stjörnurnar á Met Gala Tíska og hönnun Laufey skein skært á Met Gala Tíska og hönnun Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld Lífið Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Lífið Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Lífið Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Eurovision-vaktin: Stemningin sjaldan verið minni Eurovision-hópurinn afklæðist milli atriða Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Glösin á loft fyrir nýjum burstahreinsi „Pollróleg“ en full eftirvæntingar fyrir kvöldinu Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Salurinn aldrei sungið eins mikið með einu lagi Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Myndaveisla: Svana töfraði fram suðræna veislu fyrir UAK Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Söngskóli Sigurðar Demetz með Oklahoma í Borgarleikhúsinu Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru Sumarlegir réttir að hætti Jönu Emilíana Torrini kemur fram í Hörpu Búa til barnaefni á íslensku á Youtube Er hægt að skjóta í gegnum byssukúlu? Blóm og plöntur sem þola kuldann Neyslan var orðinn algjör þrældómur Stjörnulífið: Líf og fjör og ástin blómstar Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Bítið í beinni „Ég verð að komast til Japan“ Sjá meira