Sterkustu skákmenn landsins mæta til leiks Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 1. nóvember 2014 09:15 "Skák var eitt aðal áhugamál og tómstundagaman Einars Ben. Það kemur fram í endurminningum konu hans,“ segir Hrafn Jökulsson. Fréttablaðið/Ernir „
Einar Benediktsson sendiherra mun leika fyrsta leikinn á afmælismóti Einars Ben á veitingahúsinu Einari Ben við Ingólfstorg. Þetta er svona þrenna,“ segir Hrafn Jökulsson, formaður Taflfélagsins Hróksins. Þar á hann við skákmót sem haldið er í dag klukkan 14 í tilefni 150 ára afmælis skáldsins Einars Ben. Hrafn segir skáldið Einar Ben hafa verið ástríðufullan skákmann. „Skák var eitt aðal áhugamál og tómstundagaman Einars. Það kemur fram í endurminningum konu hans. Hann tefldi mikið og var meðal stofnenda Taflfélags Reykjavíkur sem er elsta og virðulegasta taflfélag á landinu og stendur að afmælismótinu ásamt okkur í Hróknum.“ Hrafn segir Einar hafa tekið þátt í fyrsta opinbera skákviðburðinum á Íslandi sem sögur fara af. „Hann tefldi sýningarskák á þjóðhátíð í Reykjavík 1901 með lifandi taflmönnum gegn Pétri Zóphóníassyni sem var besti skákmaður landsins á þeim tíma. Þeirri skák lauk með jafntefli,“ segir Hrafn. „Einar tefldi að staðaldri við bestu skákmenn á Íslandi og hefur örugglega ekki þolað að sitja alltaf og tapa. Það var ekki í hans anda.“ Við setningu mótsins í dag klukkan 14 mun Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur flytja afmælisræðu um Einar. Margir meistarar eru skráðir til leiks, meðal annars Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslands og fyrrverandi forseti FIDE. Einnig stórmeistararnir Jóhann Hjartarson, Jón L. Árnason, Þröstur Þórhallsson og Hjörvar Steinn Grétarsson og alþjóðlegu meistararnir Björn Þorfinnsson og Jón Viktor Gunnarsson. Alls verða keppendur 40 og í þeim hópi eru mörg efnilegustu börn og ungmenni landsins í íþróttinni. Veitingahúsið Einar Ben gefur veglega vinninga, meðal annars bækur með ljóðum þjóðskáldsins. Áhorfendur eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Fleiri fréttir „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Sjá meira