Hápunkturinn að sofa í snjóhúsi 9. janúar 2014 09:30 Páll Ásgeir Ásgeirsson er annar fararstjóra í ferðinni. MYND/Úr einkasafn „
Í Sjálfstæðu fólki Halldórs Laxness er sagt frá svaðilför Bjarts í Sumarhúsum þar sem hann ætlaði að handsama hreindýr og stökk á það. Hann sundreið svo þessu dýri yfir Jökulsá á Fjöllum og var þá kominn inn í óbyggðir. Á leiðinni aftur til byggða sefur hann í fönn til að koma sér í gegnum nóttina. Til þess að komast af, dregur hann fram blóðmörskepp sem var þá gaddfreðinn og stakk inn á sig beran til að þíða keppinn,“ segir Páll Ásgeir Ásgeirsson, annar fararstjóra í skíðaferð um páskana, sem heitir Með blóðmör á berum sér og er á vegum Ferðafélags Íslands. Í ferðinni koma þátttakendur til með að ganga upp í Tindfjöll frá innsta bæ í Fljótshlíð – upp í gamlan skála, sem er í um það bil þúsund metra hæð. Að sögn Páls mun hópurinn setja þar upp búðir og eyða páskunum. „Það sem er einnig dálítið skemmtilegt við þessa ferð er það að við ætlum að eyða páskunum í að byggja okkur snjóhús til að sofa í og þannig verður þetta eins og lítið námskeið í snjóhúsabyggingu,“ útskýrir Páll, en bætir við að það sé öryggi í því að vera við skálann. „Ef veðrið verður óviðráðanlegt þá getum við flúið í húsaskjól með páskasteikina,“ segir Páll, léttur í bragði. „Ég vona þó að til þess komi ekki – það hlýtur að vera hápunktur ferðarinnar að sofa í snjóhúsi sem maður býr sjálfur til.“
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira