Heldur sigurganga KR-inga áfram á nýju ári? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2014 07:00 Martin Hermannsson og félagar í KR hafa unnið alla deildarleiki sína í vetur. Mynd/Stefán
Dominos-deild karla í körfu fer af stað í kvöld eftir jólafríið en fjórir leikir fara þá fram í tólftu umferðinni. Stórleikur kvöldsins er á milli toppliðs KR og Íslandsmeistara Grindavíkur í DHL-höllinni. KR hefur unnið alla ellefu deildarleiki sína á leiktíðinni. Tvö af þremur liðum sem hafa unnið alla deildarleiki sína fyrir áramót hafa tapað fyrsta leik á nýju ári. Grindavík (2003-2004) tapaði með níu stigum (95-104) á útivelli á móti Njarðvík og Keflavík (2007-08) tapaði með 22 stigum (76-98) á útivelli á móti Grindavík. KR hefur einu sinni áður verið í þessari sömu stöðu en KR-ingar unnu 18 stiga útisigur á ÍR (98-80) í fyrsta deildarleik ársins 2009. Fyrsta deildartap KR veturinn 2008-09 var aftur á móti Grindavík í byrjun febrúar. Tveir „gamlir“ en um leið „nýir“ bandarískir leikmenn fá sína frumsýningu í Borgarnesi í kvöld. Benjamin Curtis Smith spilar þá sinn fyrsta leik með Skallagrími (lék með Þór Þorlákshöfn í fyrra) og Nigel Moore spilar sinn fyrsta leik með ÍR en hann kom til liðsins frá Njarðvík um áramótin. Tveir aðrir leikir fara fram í kvöld. Það verður nýliðaslagur á Hlíðarenda þar sem Valsmenn taka á móti Haukum og í TM-höllinni í Keflavík taka heimamenn á móti Stjörnunni en það eru sjaldan mikil rólegheit í gangi í leikjum þessara tveggja liða.
Dominos-deild karla Mest lesið „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Sú besta í heimi er ólétt Sport Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Körfubolti Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Enski boltinn Fleiri fréttir Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Tryggvi og félagar sluppu með skrekkinn á móti botnliðinu NBA-leik frestað vegna óeirða í Minneapolis Elvar og félagar köstuðu frá sér sigrinum Njarðvík nær í nýjan miðherja eftir meiðslin Körfuboltakvöld: Betra að temja villtan leikmann en að vera með einhverja rolu Uppgjörið KR - Grindavík 93-71 | KR annað liðið til þess að vinna Grindavík Uppgjör: Tindstóll-Njarðvík 113-92 | Stólarnir léku sér að Njarðvíkingum „Of margir sem reyndu að bjarga leiknum“ „Langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð“ Uppgjörið: Keflavík - Ármann 93-102 | Ármenningar unnu í Keflavík Uppgjörið: Álftanes - ÍA 89-83 | Justin James afþiðnaði á réttum tíma Kári: Það koma dalir á hverju tímabili Leik lokið: ÍR - Stjarnan 109-118 | Stjörnumenn áfram á sigurbraut Uppgjörið: Valur - Þór Þ. 80-71 | Valsmenn unnu framlengdan leik Uppgjörið: Njarðvík-Keflavík 88-77 | Danielle og Brittany fóru á kostum Tryggvi og félagar eru áfram með fullt hús í Evrópubikarnum Abby með sigurkörfuna 0,8 sekúndum fyrir leikslok Áfall Njarðvíkur fyrir grannaslag kvöldsins Fyrsta Evróputap Stólanna í Síkinu Fjórði sigur Haukakvenna í röð KR - Valur 66-77 | Valur komst upp fyrir KR eftir sigur í rimmu liðanna Martin stoðsendingahæstur í Evrópusigri Tímabilið búið hjá Butler Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Bað um að fara frá Keflavík Risaleikir í undanúrslitum bikarsins Justin James aftur á Álftanesið Blóðugt tap gegn Börsungum Sjá meira