30 mistekist að klára risaborgara 9. janúar 2014 14:00 Hér má sjá Magnús á veitingastað í Tucson. Þeir sem klára þrjár risapönnukökur fá máltíðina ókeypis. Mynd/Úr einkasafni „
Ef menn fara ekki að taka sig saman í andlitinu og klára risaborgarann þá fer ég í það sjálfur,“ segir Magnús Ingi Magnússon, betur þekktur sem Meistara-Maggi, eigandi Texasborgara. Í desember bauð Magnús svöngum gestum upp á áskorun, þeir áttu að klára þriggja kílóa hamborgara á innan við klukkustund. Takist þeim ætlunarverkið, borða þeir frítt, ef ekki þurfa þeir að borga fyrir máltíðina. „Ég ætlaði upphaflega bara að hafa þessa áskorun í gangi í nokkra daga. En viðtökurnar voru svo svakalegar að ég hef ákveðið að halda henni gangandi til framtíðar,“ útskýrir Magnús. Hann segir gjafabréf í áskorunina hafa verið vinsæla jólagjöf. „Á nýju ári hafa sjö manns reynt við borgarann. Þetta er geysivinsælt alveg hreint,“ segir Magnús enn fremur. Hann stýrir matreiðsluþætti á ÍNN, Eldhús meistaranna. Í næstu þáttum mun hann sýna frá ferðalagi sínu til Texas, þar sem hann kynnti sér staðarhætti og verklag veitingastaða í fylkinu. „Þetta var eins konar pílagrímsferð fyrir mig. Í þættinum á þriðjudaginn mun ég sýna frá því þegar ég fer á morgunverðarstað í Tucson og þar var áskorun um að klára þrjár risa pönnukökur – þá fengi maður máltíðina fría. Síðar í mánuðinum mun ég svo leyfa áhorfendum að sjá mig reyna við tveggja kílóa steik á veitingastað í Amarillo,“ segir Magnús glaðbeittur.
Mest lesið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Áskorun „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Fleiri fréttir Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Sjá meira