Dekruð á meðgöngunni Ellý Ármanns skrifar 9. janúar 2014 14:00 mynd/einkasafn
Hanna Rún Óladóttir, 22 ára dansari með meiru, er stödd í Rússlandi með unnusta sínum og dansfélaga, Nikita Bazev, 25 ára, sem tók meðal annars þátt í sjónvarpsþættinum Dancing with the stars en þau hafa náð frábærum árangri á heimsvísu þegar kemur að dansi. mynd/einkasafn Hvar í veröldinni eruð þið stödd núna? ,,Heyrðu, við ákváðum að vera á Íslandi hjá fjölskyldunni minni um jólin og fara svo 27. desember til Rússlands og vera með fjölskyldunni hans Nikita yfir áramótin. Það gengur alveg rosalega vel. Nikita stendur sig eins og hetja. Hann stjanar svoleiðis við mig og er svo duglegur að hjálpa mér."Hann er alltaf að koma mér á óvartHvað ætlið þið að vera lengi í Rússlandi? ,,Við verðum hérna þangað til 16. janúar og þá kem ég til Íslands en hann fer beint til Portúgal og Úkraínu að kenna og kemur svo til Íslands 26. janúar. Það er æði að vera hérna. Hann kemur frá svo góðri fjölskyldu og þau öll svo náin eins og mín fjölskylda og mikil ást og umhyggja sem er í kringum mann á hverjum degi. Fjölskyldan hans er alveg yndisleg og það er farið með mig eins og prinsessu. Hann nuddar mig á hverju kvöldi og færir mér morgunmat í rúmið reglulega," segir hún glöð. Hér er Hanna Rún gengin 16 vikur.Mynd/einkasafn Barnið væntanlegt í maí eða júní Hvernig líður þér og hvenær ertu sett? ,,Ég á að eiga í maí eða júní en er ekki búin að fá settan dag ennþá. Fyrstu tólf vikurnar hjá mér voru alveg rosalega erfiðar þar sem ég hélt engu niðri og var bara rúmliggjandi með mikinn hausverk, svima og flökurleika ásamt því að ég lenti í þvi að fá nýrnasteina," útskýrir Hanna Rún.Er Nikita að hlúa vel að þér á meðgöngunni?,,Hann er sá allra rómantískasti. Hann er alltaf að koma mér á óvart. Hann for með mig í dýragarðinn og sirkus. Svo erum við búin að fara á allskonar söfn. Hann keypti miða á óperu á fremsta bekk 12. janúar og ég er mjög spennt."Hvað með dansinn? ,,Ég er ekkert að keppa. Ég er bara að æfa smá. Við ætlum að keppa í ágúst. Við enduðum árið 2013 svo sterkt með að ná 16. sætinu á heimsmeistaramótinu í Berlin og ég gengin þrjá og hálfan mánuð á leið. Við ákváðum að byrja sterkt á mótinu í ágúst sem heitir Germany Open og er eitt stærsta og sterkasta mót sem haldið er í heimi," segir Hanna Rún.
Mest lesið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Lífið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Lífið Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Bíó og sjónvarp „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Lífið Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Lífið Matt Brown er látinn Lífið Áslaug býður í partý Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið Fleiri fréttir Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“