Háspenna – lífshætta 6. mars 2014 08:30 Laufey Helgadóttir. Vísir/Daníel
Á föstudaginn 7. mars klukkan átta verður opnuð yfirlitssýning á verkum Magnúsar Kjartanssonar myndlistarmanns í Listasafni Íslands. „Þetta er búið að standa til lengi,“ segir Laufey Helgadóttir sýningarstjóri, en Magnús lést árið 2006, aðeins 57 ára gamall. Sýningin heitir Form, litur, líkami: Háspenna/Lífshætta. „Titillinn lýsir ferli Magnúsar mjög vel. Hann byrjaði sem formalisti, fór síðan út í að gera samklippur og verk í anda popplistarinnar áður en hann fór að gera alls konar tilraunir með ljósmyndatækni. Þá bætti hann stundum inn í verkin sín setningunni „Háspenna/Lífshætta“. Líf Magnúsar og ferill voru svolítið þannig. Hann fór út á ystu nöf, var ögrandi, gagnrýninn, beinskeyttur, og veigraði sér ekki við að takast á við viðfangsefni sem aðrir þorðu ekki að taka á.“ Magnús gerði til dæmis myndir þar sem hann notaði sinn eigin líkama, hendur, fætur, og bókstaflega allan líkamann. „Hann makaði málningu á sig, lagðist á léreftið og útkoman varð mjög sterkar og óvanalegar sjálfsmyndir,“ segir Laufey. „Hann gekk nærri sjálfum sér, til dæmis með því að nota iðulega hættuleg efni í verkin sín. Eftir að ljósmyndatímabilinu lauk fór hann að mála stór olíuverk þar sem hann notaði alls konar fundið efni og undir lokin gerði hann myndir með trúarlegum viðfangsefnum,“ heldur Laufey áfram og bætir við að þessi ólíku skeið hafi jafnvel verið ólík innbyrðis. „Magnús var frábær listamaður, eins konar endurreisnarmaður, sem lést langt fyrir aldur fram og þetta er í fyrsta sinn sem er gerð úttekt á honum. Þetta er yfirgripsmikil sýning sem verður í fjórum sölum í safninu,“ segir Laufey að lokum.
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira