Atli Bolla leikur Atla í Kanada Þórður Ingi Jónsson skrifar 20. október 2014 11:30 Myndin fjallar um hóp ungmenna sem eru að nálgast þrítugt. Fréttablaðið/Daníel „
Þetta er mjög artí mynd, það er alveg klárt“, segir Atli Bollason, kynningarstjóri RIFF-kvikmyndahátíðarinnar, sem er nú staddur í Toronto í Kanada til að leika í indímyndinni O, Brazen Age. „Það er búið að vera mjög gaman að kíkja á það sem við höfum verið að skjóta og þetta lítur mjög skemmtilega út, mjög töff í alla staði.“ Að sögn Atla fjallar myndin um hóp kanadískra ungmenna sem eru að nálgast þrítugt og kveðja því æsku sína og alls kyns hluti sem þau hafa sankað að sér í gegnum árin og tákna liðna tíð. Í myndinni leikur Atli karakter sem heitir sama nafni og hann. „Ég held að þetta sé bara leti í leikstjóranum,“ segir Atli og hlær. „Ég leik einn af þessum krökkum. Persónurnar eru bóhemlið í Toronto, hópur ungra listamanna mikið til.“ „Myndin fjallar mikið um hvernig við skiljum við okkur það sem liðið er. Það er endurspeglað í stíl myndarinnar sem er mjög nostalgískur, hún er til dæmis skotin að hluta til á Super 16-filmu sem nær fram mjög nostalgískum áhrifum.“ Atli bjó í Montréal í Kanada á sínum tíma en þar hitti hann leikstjórann Alexander Carson. Þetta er fyrsta mynd hans í fullri lengd en Atli hefur áður leikið í tveimur stuttmyndum eftir Carson. „Í lok næsta árs eigum við von á því að myndin fari að birtast á kvikmyndahátíðum,“ segir Atli.O, BRAZEN AGE (2015) // 1 from North Country Cinema on Vimeo.
Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Lífið Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Fleiri fréttir Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Sjá meira