Vill sjá fólk kveljast Ugla Egilsdóttir skrifar 15. janúar 2014 09:30 Esther Ösp er aðfluttur íbúi á Hólmavík. fréttablaðið/Vilhelm
Esther Ösp Valdimarsdóttir, tómstundafulltrúi í Strandabyggð, stendur að nýrri menningarhátíð á Hólmavík sem fer fram í febrúar og nefnist Hörmungardagar. „Ég flutti úr höfuðstaðnum út á land í leit að eymd, því ég hef svo gaman af því að sjá fólk kveljast,“ segir Esther Ösp. „Síðan var hér bara eintóm hamingja. Á Hólmavík eru haldnir Hamingjudagar í júní. Í Fréttablaðið var meira að segja skrifuð frétt í fyrra með fyrirsögninni: „Héðan flytur enginn.“ Ég varð fyrir vonbrigðum með alla þessa hamingju,“ segir Esther Ösp. „Þetta var ekki sú stemning sem ég var að leita eftir, þannig að ég tók málin í mínar hendur og ákvað að stofna Hörmungardaga, sem verða haldnir í febrúar. Markmiðið er að breyta ásýnd staðarins þannig að hann verði meira eins og ímynd mín af landsbyggðinni áður en ég flutti.“ Dagskrá Hörmungardaga er tileinkuð heimsharminum. „Öll atriði eru enn í gerjun, en braggablús verður spilaður í bragganum hérna, sem er frábær tónlistarstaður. Síðan verður morðgátukvöld. Grunnskólinn í Hólmavík sviðsetur flóttamannabúðir, og leikfélagið ætlar að sýna einþáttung úr harmleik. Öllum er frjálst að taka þátt og túlka þemað eftir sínu höfði.“ Hörmungardagar verða haldnir 14.-16. febrúar á Hólmavík.
Mest lesið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? Menning Saga jarðaði alla við borðið Lífið Fleiri fréttir „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar Sjá meira