Viðskipti innlent

Alls var 104 fasteignasamningum þinglýst í borginni í síðustu viku

Alls var þinglýst 104 kaupsamningum um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Þetta er nokkuð undir meðaltalinu á viku undanfarna þrjá mánuði sem er 113 samningar.

Af þessum 104 samningum voru 79 samningar um eignir í fjölbýli, 18 samningar um sérbýli og 7 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Heildarveltan var 4 milljarðar króna og meðalupphæð á samning tæplega 39 milljónir króna. Veltan var um 200 milljónum króna yfir meðaltalinu á viku undanfarna þrjá mánuði og en samningsupphæðin var 5 milljónum króna yfir meðaltalinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×