Rödd foreldra er sterkasta verkfærið Guðrún Helga Bjarnadóttir skrifar 21. nóvember 2013 06:00 Dagana 20. til 25. nóvember eru samtökin Blátt áfram, forvarnarverkefni að fara af stað með auglýsingar á næstu dögum í fjölmiðlum. Auglýsingarnar eru til þess að minna á mikilvægi forvarnarfræðslu gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum. Við leggjum mikla áherslu á ábyrgð foreldra þegar kemur að forvörnum. Fræðsla sem þessi þarf að fara fram á milli foreldra og barna til að auka líkurnar á því að barn segi frá ef það lendir í einhverjum vandræðum. Slík fræðsla snýst meira um samskipti en nokkuð annað. Hvernig líður barninu þínu? Í hvaða aðstæðum er barnið þitt dags daglega? Veit barnið þitt að þú ert upplýst og stendur með því ef það lendir í óþægilegum aðstæðum. Veistu hvert barnið þitt leitar ef því líður illa og hverjum það treystir? Rödd foreldra er sterkasta verkfærið. Þegar þú velur að fylgjast með og hafa skoðun á þeim aðstæðum sem barni þínu er boðið upp á í hverju því starfi sem ætlað er börnum, ertu að gera rétt. Með því ertu að vernda barnið þitt. Blátt áfram eru forvarnarsamtök sem miða að því að vekja samfélagið til meðvitundar um kynferðislegt ofbeldi á börnum. Það sem meðal annars knýr samtökin áfram er sú staðreynd að um 2000 börn hafa fengið aðstoð í Barnahúsi á síðustu 12 árum. Meirihluti barna sem verða fyrir kynferðisofbeldi eru 10 ára og yngri og gera sér ekki grein fyrir að það sem verið er að gera þeim, sé bannað. Flest börn sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi tilkynna það aldrei, en þau sem gera það og fá hjálp í kjölfarið eiga alla möguleika á að eiga gott líf. Einstaklingar sem beita börn kynferðislegu ofbeldi sækja í aðstæður sem veita þeim auðveldan aðgang að börnum. Hægt er að ræna barn æskunni á einu augnabliki, sakleysi sem kemur aldrei aftur. Samkvæmt rannsókn Sigrúnar Sigurðardóttur, á afleiðingum og áhrifum ofbeldis á börn, þá fylgja þau barninu fram á fullorðinsárin t.d. með aukinni hættu á áfengis- og vímuefnanotkun, brotinni sjálfsmynd, átröskun, afbrotum, sjálfsvígum, glæpum og fleira. Íslenskar rannsóknir sem hafa verið gerðar um tíðni kynferðisofbeldis á börnum sýna að 17 prósent barna hafa verið beitt kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára aldur og að 27 prósent barna hafa orðið kynferðislegu áreiti fyrir 18 ára aldur. Foreldrar eiga að vera upplýstir, spyrja spurninga og standa með barni sínu. Ef þú upplifir óöryggi og veist ekki hvernig þú á átt að taka þessi skref hvetjum við þig til að kynna þér forvarnarfræðslu sem er í boði fyrir foreldra á vefsíðu félagsins blattafram.is Verum upplýst – verndum börnin okkar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar