Aron hræðist ekki aukna pressu og ábyrgð Sigurður Elvar Þórólfsson í Sevilla skrifar 12. janúar 2013 09:00 klár í slaginn Aron verður í lykilhlutverki hjá íslenska liðinu á HM.fréttablaðið/vilhelm
Aron Pálmarsson verður í risastóru hlutverki með íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu. Aron, sem nýverið var valinn Íþróttamaður ársins 2012, er ekki nema 22 ára gamall en hann vill sem minnst tala um aldur sinn. „Ég hef verið að reyna að losna við „unga" stimpilinn undanfarin tvö ár og það er ekki hægt að skýla sér á bak við það endalaust. Það vantar marga lykilmenn í hópinn að þessu sinni og það er því meiri pressa á mér og meiri ábyrgð. Ég er ekkert að stressa mig á því – ég hlakka bara til að takast á við það. Mér finnst ég spila betur þannig. Frá því að ég kom inn í landsliðið eftir ÓL 2008 þá hefur það verið þannig að liðið fer í alla leiki til þess að vinna. Það er miklu meira sjálfstraust til staðar hjá leikmönnum og það vita allir hvað er hægt að gera. Það er meðbyr hjá okkur, við erum lið sem margir vilja ekki mæta og við höfum nýtt okkur það." Aron telur að þeir leikmenn sem hafa verið valdir í liðið á HM standi fyllilega undir þeim væntingum sem til þeirra eru gerðar. „Þeir sem eru í liðinu eru góðir í handbolta og þeir sem hafa komið nýlega inn í þetta lið eru allir frábærir handboltamenn. Það er undir þeim komið að sýna hvað í þeim býr á stóra sviðinu." Aron telur að Ísland eigi að komast í átta liða úrslit á HM. „Við erum með það gott lið að það á að vera raunhæft að stefna á átta liða úrslitin og eftir það getur allt gerst. Okkar möguleikar gegn Rússum liggja í því að stöðva skytturnar þeirra og hraðaupphlaupin eru þeirra sterkasta vopn. Ég hef ekki miklar áhyggjur af sóknarleiknum – vörnin þarf að vera í lagi og markvarslan. Þetta hefur allt saman heyrst áður og er fín uppskrift."
Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Handbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira