Vilja hefja hnúfubaksveiðar Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 1. ágúst 2013 07:00 Þessi skepna hefur ekki verið veidd hér við land í tæp sextíu ár. Hnúfubakurinn getur orðið sautján metra langur og fjörutíu tonn að þyngd.
Gunnar Bergmann, framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna, hvetur til þess að veiðar verði hafnar á hnúfubaki og segir að félagið hefði áhuga á að stunda slíkar veiðar. Sverrir Daníel Halldórsson, hvalasérfræðingur á Hafrannsóknastofnun, segir það skynsamlegt að leyfa veiðar á hnúfubak í vísindaskyni sem gætu farið fram samfara talningu og rannsóknum á stofninum. „En það er bara pólitísk ákvörðun hvort menn vilja fara út í það,“ segir Sverrir Daníel en hann segir að rannsókn sem þessi sé dýr og taki nokkur ár. Þetta kemur heim og saman við tillögur Gunnars, sem segir bráðnauðsynlegt að rannsaka stofninn. Veiðar yrðu stundaðar í vísindaskyni í fimm ár eða svo en þá væru menn með gögn til að nota til veiðiráðgjafar. „Það þyrftu ekki að vera nema tíu dýr á ári og ég held að allir viti að það hefði nánast engin áhrif á stofninn,“ segir hann. Sverrir Daníel segir að hnúfubökum hafi fjölgað hér við land undanfarin ár og vísbendingar séu um að hrefnan leiti í auknum mæli á aðrar slóðir. Gunnar segir hrefnuveiðimenn hafa sannreynt þetta þegar þeir fóru hringinn í kringum landið og var víðast dræmt til hrefnuveiða en afar mikið um hnúfubak, sérstaklega fyrir norðan land. „Ég held við verðum að fara að rannsaka það hvaða áhrif það hefur á þessa auðlind okkar og það er einmitt kominn tími á að sérfræðingum sé gefið sviðið til að rannsaka þessi mál,“ segir Gunnar. Frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu bárust þau svör að þar sem engin beiðni um slíkar veiðar hefðu borist væri ráðherra ekki í aðstöðu til að velta því upp.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Sjá meira