"Gosling var bara yndislegur" Kristján Hjálmarsson skrifar 18. júlí 2013 16:30 Ryan Gosling og María Klara Jónsdóttir á leið til Íslands í morgun. Mynd/Úr einkasafni "
Gosling var bara yndislegur. Það fór ekkert fyrir honum. Hann var mjög kurteis og almennilegur - bara fínn strákur," segir María Klara Jónsdóttir, flugfreyja hjá Icelandair. Bandaríski hjartaknúsarinn Ryan Gosling kom aftur til landsins í morgun eftir stutt ferðalag til Bandaríkjanna. Hann flaug frá New York með Icelandair og lenti á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir sjö. María Klara var flugfreyja um borð í vélinni og fékk að smella mynd af sér með kappanum. Gosling hefur verið að klippa mynd sína, How to Catch a Monster, með Valdísi Óskarsdóttur hér á landi en myndin er frumraun hans í leikstjórastólnum. "Hann er mjög hrifinn af landi og þjóð segir," María Klara. Gosling var þó ekki eini heimsfrægi leikarinn um borð því framar í vélinni var bandaríski leikarinn Gabriel Macht, sem er best þekktur fyrir hlutverk sitt sem lögfræðingurinn harðsvíraði Harvey Specter í sjónvarpsþáttunum Suits. Hann kom til landsins ásamt konu sinni og barni. "Þetta var full mikið af því góða. Þetta eru samt bara ósköp venjulegir menn. Ég er ekki viss um að aðrir farþegar hafi þekkt þá, nema kannski við flugfreyjurnar sem vorum að fara yfir um," segir María Klara og hlær. Þetta er þriðja sumarið sem María Klara vinnur sem flugfreyja hjá Icelandair. Gosling og Macht eru ekki einu frægðarmennin sem hún hefur hitt í vinnunni því eitt sinn var Noregskonungur meðal farþega. "Hann var bara slakur frammí," segir María Klara og skellir upp úr. "Þetta í morgun toppaði samt sumarið og jafnvel árið held ég bara."
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Bíó og sjónvarp Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Fleiri fréttir Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“