Opið bréf til stjórnar Ríkisútvarpsins Arngunnur Árnadóttir, Júlía Mogensen, Melkorka Ólafsdóttir, Valgerður Þóroddsdóttir og aðdáendur Ríkisútvarpsins skrifa 13. desember 2013 07:00 Til Ingva Hrafns Óskarssonar, Magnúsar Stefánssonar, Bjargar Evu Erlendsdóttur, Guðrúnar Nordal, Margrétar Frímannsdóttur, Magnúsar Geirs Þórðarsonar, Úlfhildar Rögnvaldsdóttur, Sigurðar Bjarnar Blöndal, Péturs Gunnarssonar og Sigríðar Hagalín Björnsdóttur. Undirritaðar eru skipuleggjendur samstöðufundar um Ríkisútvarpið sem haldinn var í Háskólabíói 4. desember síðastliðinn. Við hörmum aðgerðir útvarpsstjóra þann 27. nóvember, þegar fjölda lykilstarfsmanna var sagt upp og mikið af ómetanlegu dagskrárefni lagt niður. Skörð voru höggvin í dagskrá Rásar 2, fréttastofuna, Kastljós og Spegilinn, en Rás 1 kom einna verst út úr aðgerðunum. Rás 1 missti við uppsagnirnar rúman helming starfsfólks síns en hlaut þó fyrir aðgerðirnar aðeins 7% af fjármagni Ríkisútvarpsins. Okkur er kunnugt um fyrirhugaðan niðurskurð stjórnvalda til Ríkisútvarpsins. Í ljósi hans verður þó ekki sagt að aðgerðir útvarpsstóra hafi verið óhjákvæmilegar. Þvert á móti endurspegla þær fyrst og fremst forgangsröðun stjórnenda sem að okkar mati er í þó nokkru ósamræmi við lögbundið hlutverk Ríkisútvarpsins. Það að vega svo harkalega að starfsemi Rásar 1 er ekki réttlætanlegt með tilliti til þeirrar staðreyndar að heildarlaun og þóknanir til æðstu stjórnenda jukust úr 57,8 milljónum í 74,6 milljónir milli áranna 2012 og 2013. Ekkert var skorið niður í yfirstjórn Ríkisútvarpsins við uppsagnahrinuna.Erfitt að átta sig Erfitt er að átta sig á viðmiðum útvarpsstjóra í uppsögnum á Rás 1. Tónlistardeildin hefur nánast verið jöfnuð við jörðu og eini útvarpsþátturinn fyrir börn var lagður niður, auk vandaðs þáttar um kvikmyndir. Eini dagskrárliður Ríkisútvarpsins sem fræðir almenning um vísindi, og það á ótrúlega aðgengilegan hátt, var tekinn af dagskrá. Þaulreyndu, menntuðu og verðlaunuðu starfsfólki var sagt upp. Ummæli útvarpsstjóra á Bylgjunni sunnudaginn 8. desember vörpuðu nokkru ljósi á málið. Þar sagði hann m.a.: „Það má ekki hafa skírskotunina of þrönga, þetta heitir almannaþjónustuútvarp, þetta er ekki fámannaþjónustuútvarp og út á það gengur skilgreiningin á þessari starfsemi alls staðar í kringum okkur, á Norðurlöndunum, Bretlandi og alls staðar sem við tökum okkur til fyrirmyndar, að það verður að vera almenn skírskotun í dagskrárgerð, en það má ekki breyta þessu í einhverja sérviskulega, þrönga dagskrá sem hefur ekki almenna skírskotun, þá er alveg eins gott að loka þessu, þá hefur þetta enga þýðingu.“Takmarkaður áhugi Út frá þessum ummælum má álykta að útvarpsstjóri hafi takmarkaðan áhuga á lögbundnu hlutverki stofnunarinnar. Í lögum um Ríkisútvarpið segir meðal annars: „Ríkisútvarpið skal framleiða og miðla vönduðu og fjölbreyttu efni … fjölmiðlaefnið skal hið minnsta vera fréttir og fréttaskýringar, fræðsluþættir, íþróttaþættir, afþreying af ýmsum toga, lista- og menningarþættir og sérstakt efni fyrir börn og ungmenni … Ríkisútvarpið skal dreifa efni til alls landsins og næstu miða með a.m.k. tveimur hljóðvarpsdagskrám og einni sjónvarpsdagskrá árið um kring … Ríkisútvarpinu ber að kynna margbreytileika mannlífs, lífsviðhorfa og lífsskilyrða í landinu.“ Með hinni „almennu“ nálgun sem útvarpsstjóri boðar er unnið gegn fjölbreytni og dagskrárliðum sem hafa litla áheyrn en mikið vægi af öðrum ástæðum. Útvarpsstjóri lagði niður nokkra helstu fræðslu-, lista- og menningarþætti Rásar 1 auk barnaefnisins. Ástríðufullum hlustendum Rásar 1 hefur orðið fullljóst síðustu daga að ekki er hægt að tala um nema hálfa hljóðvarpsdagskrá á Rás 1, hinn helmingurinn er tónlist valin af handahófi, mest jólalög, og heilu plöturnar eru spilaðar til enda. Útvarpsstjóri á e.t.v. við margbreytileikann og fræðsluna þegar hann talar um „sérviskulega dagskrá“.Rangfærslur Auk þess virðingarleysis sem gætir í orðum útvarpsstjóra gagnvart lögum um stofnunina fer hann beinlínis með rangfærslur hvað varðar ríkisútvörp í nágrannalöndunum. BBC í Bretlandi rekur t.d. heilar fjórar útvarpsstöðvar sem helgaðar eru mismunandi tónlist, óháð fjölda hlustenda. Útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins leggur nánast niður tónlistardeild einu útvarpsstöðvarinnar á landinu þar sem fjallað er um allar tegundir af tónlist. Sýn útvarpsstjóra sem birtist í ummælum hans á Bylgjunni virðist ganga út á það að almannaútvarp lúti lögmálum markaðsins. Ríkisútvarpinu ber aftur á móti skylda til þess að sinna því sem einkareknir fjölmiðlar gera ekki. Dagskrárgerð Ríkisútvarps á ekki að vera háð markaðsöflum. Við skorum á stjórnina að íhuga vandlega ábyrgð sína í aðgerðunum undanfarið og ígrunda afstöðu sína gagnvart því hvort útvarpsstjóri verði endurráðinn. Við hvetjum stjórnina til að tryggja að Ríkisútvarpinu sé stjórnað samkvæmt lögum um miðil í eigu þjóðarinnar. Við köllum eftir skýrri stefnu um framtíð stofnunarinnar í samræmi við lögbundið hlutverk hennar. Um leið og við hvetjum stjórnina til úrbóta langar okkur að hvetja hlustendur og áhorfendur – eigendur Ríkisútvarpsins – til að láta í sér heyra og gefast ekki upp fyrr en árangur næst. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Pólitískir vindhanar sem vilja nú hafa afstöðu af þjóð Þórður Snær Júlíusson Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Ég ætla að treysta komandi kynslóðum Margrét Sveinsdóttir Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun „Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB,“ sagði engin þjóð aldrei Eiríkur Ragnarsson Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Skoðun Að semja gegn sjálfum sér Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson skrifar Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ég ætla að treysta komandi kynslóðum Margrét Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvernig er að eiga sæti við borðið Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Pólitískir vindhanar sem vilja nú hafa afstöðu af þjóð Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun „Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB,“ sagði engin þjóð aldrei Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar
Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun