Lífið

Löggan vaktaði rappstelpur fyrir framan Alþingi

Ugla Egilsdóttir skrifar
Nýja lagið fjallar meðal annars um rapparana sjálfa en í því er líka samfélagsádeila.
Nýja lagið fjallar meðal annars um rapparana sjálfa en í því er líka samfélagsádeila. Mynd/Arnar Steinn Friðbjarnarson
„Hún stoppaði og fylgdist með okkur í dágóðan tíma til að athuga hvort við værum með einhver ólæti. Okkur fannst þetta skynsamlegt af lögreglunni,“ segir Kolfinna Nikulásdóttir, meðlimur í hljómsveitinni Reykjavíkurdætrum. Hljómsveitin tók upp nýtt rapptónlistarmyndband fyrir framan Alþingishúsið um helgina og fylgdist lögreglan grannt með.

„Við erum nefnilega hvorki kurteisar né stilltar. Lögreglan ætti með réttu að fylgjast með öllu sem við gerum. Ég get ekki farið ofan í saumana á því í þessu blaðaviðtali hvað ég er vís til að gera. Ef ég myndi gera það yrði ég handtekin samstundis. Ég hvet hins vegar lögregluna til að koma fyrir hlerunarbúnaði í einhverjum af stóru skartgripunum mínum eða gulltönnunum til þess að reyna að komast að djöfullegum fyrirætlunum mínum á svolítið skapandi lögreglulegan hátt.“

Reykjavíkurdætur eru hópur af konum sem rappa. Þær hafa staðið fyrir reglulegum uppákomum á börum að undanförnu þar sem um þrettán stelpur hafa komið fram. Tíu þeirra eiga vers í nýja laginu sem tekið var upp myndband við um síðustu helgi. Lagið er nákvæmlega sjö mínútur. Myndbandið verður frumsýnt einhvern tíma í næstu viku en nákvæm dagsetning er óvís.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×