Færum vináttu Kína og Íslands í hærri hæðir Ma Jisheng skrifar 26. október 2013 06:00 Dagana 26. – 28. október nk. mun hið fagra Ísland bjóða velkominn í opinbera heimsókn varaforsætisráðherra ríkisráðs Kína, Ma Kai. Hann kemur hingað til lands í boði Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra Íslands. Þessi heimsókn er fyrsta heimsókn eins af nýju leiðtogum Kína til Íslands eftir að leiðtogaskipti áttu sér stað innan miðstjórnarinnar í Peking og sömuleiðis fyrsta heimsókn eins af leiðtogum Kína til Íslands eftir stjórnarskipti á Íslandi. Jafnframt hefur jafn valdamikill leiðtogi Kína ekki heimsótt Ísland það sem af er þessu ári. Því er um mjög merkilegan viðburð að ræða. Ma Kai varaforsætisráðherra er vel menntaður á sviði stjórnmála og efnahagsmála. Hann hefur mikla reynslu af grasrótarstarfi og er jafnframt mjög reynslumikill þegar kemur að stjórn efnahagsmála á vegum miðstjórnarinnar. Í langan tíma gegndi hann starfi skrifstofustjóra ríkisráðsins og sýndi í störfum sínum þar einstaka leiðtogahæfileika í að miðla málum og leiða saman ólík sjónarmið. Í dag hefur hann að mestu málefni iðnaðar, samgangna og fjármála í Kína á sinni könnu og gegnir því gríðarlega mikilvægu hlutverki í framtíðarþróun efnahagsmála og samfélags í Kína.Aukið samstarf Íslensk stjórnvöld telja heimsókn Ma Kai varaforsætisráðherra mjög mikilvæga og hafa undirbúið hana af mikilli kostgæfni. Bæði forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, munu hitta Ma Kai meðan á heimsókn hans stendur og eiga viðræður við hann. Samræður leiðtoga landanna munu snúast um hvaða leiðir ný stjórnvöld í báðum löndum hafi til að efla áfram mjög svo vinsamleg samskipti ríkjanna og koma þeim í ennþá hærri hæðir. Með sanni má segja að heimsókn Ma Kai varaforsætisráðherra að þessu sinni sé til að auka samræður á milli landanna með það að markmiði að auka skilning og vináttu alþýðu beggja ríkja sem leiða mun af sér aukið samstarf. Í Kína segir gamalt orðatiltæki: Eftir því sem vinir færast nær eykst vináttan. Heimsókn Ma Kai varaforsætisráðherra mun auka tengsl á æðstu stöðum beggja ríkja og efla samskipti á meðal almennings til aukins skilnings. Þannig styrkist þráðurinn er tengir þjóðirnar saman og gefur af sér aukið samstarf tveggja góðra vina til hagsbóta báðum aðilum og friði í heiminum. Það er einlæg ósk mín að heimsókn Ma Kai varaforsætisráðherra til Íslands megi takast vel í alla staði og ég er sannfærður um að gestrisni Íslendinga og fögur náttúra landsins muni skilja eftir ljúfar minningar í huga hans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar