Kennarar, hvar er dýfan? Tinna Sigurðardóttir skrifar 17. október 2013 06:00 Við vinkonurnar vorum að ræða málin um daginn. Sjö okkar eru í háskólanámi. Við erum allar í mismunandi fögum; hjúkrunarfræði, lyfjafræði, sálfræði, félagsráðgjöf, ferðamálafræði, verkfræði og viðskiptafræði. Við erum sem sagt mjög ólíkar. Samt sem áður vorum við sammála um að við værum allar með einn eða tvo kennara sem við vildum helst að gerðu eitthvað í kennslutækni sinni.Innantómur glærulestur Mig langaði bara að skrifa smá vitundarvakningu fyrir kennarasamfélagið og hvetja kennara til að gera kennslu líflega. Ég get sagt ykkur það, kæru kennarar, að innantómur glæruupplestur er ekki það sem flestir nemendur sækjast eftir, við kunnum jú allflest að lesa, er það ekki? Talið í kringum glærurnar, hoppið upp á borð og segið frá Sókrates eða gangið um salinn og talið um hreyfingu sameinda, pH-gildi blóðs eða siðavenjur Hadzabe-þjóðflokksins í Afríku. Haldið athygli nemendanna! Við getum alveg lesið glærurnar sjálf.Klárið þetta með stæl Nú er misserið komið á seinni helming og því um að gera að rífa sig upp og klára þetta með stæl! Þið eigið enn von til að verða skemmtilegi kennarinn eða allavega kennarinn sem maður lærir af. Námið getur verið áhugavert og kennslan drep. En námið verður ekki skemmtilegt fyrr en kennslan og námið tvinnast almennilega saman, alveg eins og ís með dýfu er ekki ís með dýfu ef það vantar dýfuna. Ég óska þess að þið takið þetta til ykkar elsku kennarar, því þið eruð lykillinn að skemmtilegu námi. Rífið ykkur upp, stingið ísnum í dýfuna og gerið allt vitlaust! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Við vinkonurnar vorum að ræða málin um daginn. Sjö okkar eru í háskólanámi. Við erum allar í mismunandi fögum; hjúkrunarfræði, lyfjafræði, sálfræði, félagsráðgjöf, ferðamálafræði, verkfræði og viðskiptafræði. Við erum sem sagt mjög ólíkar. Samt sem áður vorum við sammála um að við værum allar með einn eða tvo kennara sem við vildum helst að gerðu eitthvað í kennslutækni sinni.Innantómur glærulestur Mig langaði bara að skrifa smá vitundarvakningu fyrir kennarasamfélagið og hvetja kennara til að gera kennslu líflega. Ég get sagt ykkur það, kæru kennarar, að innantómur glæruupplestur er ekki það sem flestir nemendur sækjast eftir, við kunnum jú allflest að lesa, er það ekki? Talið í kringum glærurnar, hoppið upp á borð og segið frá Sókrates eða gangið um salinn og talið um hreyfingu sameinda, pH-gildi blóðs eða siðavenjur Hadzabe-þjóðflokksins í Afríku. Haldið athygli nemendanna! Við getum alveg lesið glærurnar sjálf.Klárið þetta með stæl Nú er misserið komið á seinni helming og því um að gera að rífa sig upp og klára þetta með stæl! Þið eigið enn von til að verða skemmtilegi kennarinn eða allavega kennarinn sem maður lærir af. Námið getur verið áhugavert og kennslan drep. En námið verður ekki skemmtilegt fyrr en kennslan og námið tvinnast almennilega saman, alveg eins og ís með dýfu er ekki ís með dýfu ef það vantar dýfuna. Ég óska þess að þið takið þetta til ykkar elsku kennarar, því þið eruð lykillinn að skemmtilegu námi. Rífið ykkur upp, stingið ísnum í dýfuna og gerið allt vitlaust!
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar