Bílpróf boðin út eftir áratug hjá Frumherja Stígur Helgason skrifar 14. október 2013 08:30 Í ökugerði. Sú nýbreytni var nýlega tekin upp að senda ökunema í ökugerði þar sem þeir geta spreytt sig við ýmiss konar óhefðbundnar akstursaðstæður. Fréttablaðið/GVA
Samgöngustofa hefur ákveðið að efna til útboðs í haust um umsjón og framkvæmd allra ökuprófa á Íslandi. Frumherji hefur annast prófin frá árinu 2002, þegar verkið var fyrst boðið út. Í forauglýsingu fyrir útboðið á vef Ríkiskaupa segir að samið verði við einn aðila um verkið og að útboðið og útboðsgögn verði nánar auglýst haustið 2013. „Ástæðan fyrir því að þetta er boðið út núna er einfaldlega sú að það var talið tímabært að skoða stöðuna á markaði og athuga hvort það byðist eitthvað betra eða hagstæðara,“ segir Þórhildur Elín Elínardóttir, upplýsingafulltrúi Samgöngustofu. „Það er engin óánægja með framkvæmdina eins og hún hefur verið.“ Verkið var á könnu ökunámsdeildar Umferðarráðs fram yfir aldamót, en árið 2001 var það boðið út. Fjórir tóku þátt, ökukennararnir Grímur Bjarndal Jónsson og Þráinn Elíasson, Ökukennarafélag Íslands, Aðalskoðun í Hafnarfirði og Frumherji, sem varð hlutskarpastur. Samningur við Frumherja tók gildi 1. apríl 2002 og var til þriggja ára, með möguleika á framlengingu til allt að tveggja ára í senn. Undanfarin ár hefur hann verið framlengdur um eitt ár í einu, þar til nú. „Við gerum ekkert annað en að fagna því að þetta verði boðið út aftur og bíðum þess í rauninni með eftirvæntingu,“ segir Orri Hlöðversson, forstjóri Frumherja. „Okkur finnst eðlilegt að það sé gert tíðar en á tíu ára fresti og við komum að öllum líkindum til með að taka þátt í þessu og reyna að spjara okkur í því.“ Frumherji rukkar fyrir prófin, mismikið eftir flokki og gjaldskráin hefur hækkað í takt við verðlag undanfarinn áratug. Tekjurnar af prófunum námu í fyrra um 80 milljónum, en þær eru misjafnar eftir ásókninni í prófin sem hefur dregist nokkuð saman eftir bankahrun, sérstaklega í önnur próf en almenna bílprófið, til dæmis mótorhjólapróf. Orri segir að tekjurnar fari mestanpart í að halda starfseminni úti, enda starfi þrettán manns um land allt við að halda prófunum úti.Finnur Ingólfsson.Finnur og félagar með ráðandi hlut Finnur Ingólfsson , fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóri, á ráðandi hlut í Frumherja hf. ásamt viðskiptafélögum sínum í gegnum eignarhaldsfélagið Spector ehf. Frumherji hét áður Bifreiðaskoðun hf. en nafni félagsins var breytt árið 1998. Frumherji sér um skoðanir af ýmsu tagi og á jafnframt alla orkusölumæla, sem Orkuveitan leigir af fyrirtækinu.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Sjá meira