Hugleiðingar grunnskólakennara í Reykjavík Geirlaug Ottósdóttir skrifar 5. október 2013 06:00 Ég er hugsi. Hugsi yfir því hvers vegna fólk talar niður skólastarf á Íslandi og segir að skólinn vinni ekkert skapandi starf með börnum. Hugsi yfir því af hverju sjálfskipaðir sérfræðingar í skólamálum spretta alltaf fram í hvert sinn sem kennarar byrja í kjarabaráttu. Hugsi yfir því hvers vegna öllum finnst ekki mjög mikilvægt að kennarar fái góð laun fyrir að veita grunnmenntun til þeirra sem skipta okkur mestu máli í lífinu. Hugsi yfir því hvers vegna útborguð laun mín á mánuði eru 265.000 kr. Hugsi yfir því hvers vegna ég, þrátt fyrir allt, hlakka til á hverjum degi að mæta í vinnuna mína. Fyrir það er ég auðvitað mjög þakklát. Í vikunni var morgunþáttur á útvarpi Sögu þar sem baráttufund kennara í Iðnó bar á góma. Hlustendum var boðið að hringja inn og tjá sig. Sjálfskipaðir sérfræðingar í skólamálum hringdu inn. Sérfræðingar, sennilega vegna þess eins að þeir höfðu á árum áður sjálfir verið í grunnskóla. Þeir höfðu leyst vanda grunnskólans. Það þurfti bara að árangursmiða laun kennara þannig að þeir fengju laun eftir meðaleinkunn nemenda sinna. Einn stakk upp á að kennari sem hækkaði meðaleinkunn bekkjarins um 30% skyldi fá launahækkun en aðrir ekki. Förum aðeins í huganum inn í venjulega skólastofu í venjulegum grunnskóla í dag. Í bekknum eru 29 nemendur. Af þeim eru sjö nemendur af erlendum uppruna (mis vel tvítyngdir), einn þroskaskertur og á einhverfurófi, einn með Asberger, tveir með ADHD og þrír lesblindir. Þar að auki eru þarna tveir nemendur sem eru með miklar geðraskanir og þola illa við inni í svona stórum bekk. Þetta er venjulegur bekkur í Skóla án aðgreiningar. Ég er ansi hrædd um að kennari þessa ímyndaða bekkjar ætti ekki möguleika á kauphækkun ef hlustendur Sögu þennan tiltekna morgun fengju að ráða! Skólastarf snýst nefnilega ekki eingöngu um einkunnir og meðaltöl. Það snýst um menntun í víðum skilningi þess orðs. Við kennarar vinnum með lifandi einstaklinga sem hafa mjög ólíkar þarfir. Ábyrgð okkar er gríðarlega mikil. Við berum ábyrgð á dýrmætasta fjársjóði okkar allra, börnunum, í sex klukkustundir á dag. Við erum líka mjög meðvituð um þessa ábyrgð okkar. Okkur þykir vænt um starfið okkar og börnin „okkar“. Sökum þess að við vinnum með lifandi einstaklinga getum við aldrei vitað nákvæmlega hvað næsti dagur ber í skauti sér, sama hversu nákvæm kennsluáætlunin er. Kannski þurfti kvíðasjúklingurinn sérstaka aðhlynningu. Ef til vill gubbaði ein stúlkan á mitt gólfið og þurfti að hringja í foreldrana. Hugsanlega gerðist eitthvað mikilvægt í lífi eins nemandans sem þurfti að sinna. Hann þurfti e.t.v. að fá að sýna myndir og segja bekkjarsystkinum sínum frá. Kennarinn notar allt sem til fellur sem hugsanlega væri hægt að nota til að uppfræða nemendur. Þetta er það sem gerir skólastarfið svo margbreytilegt og skemmtilegt. Er skapandi skólastarf í grunnskólum Reykjavíkur? Vissulega! Í skólanum þar sem ég kenni og tvö af börnum mínum stunda nám, hefur í nokkur ár verið lagt fyrir svokallað „súkkulaðiverkefni“. Þetta er verkefni sem reynir á íslenskukunnáttu, stærðfræði, sköpun og tjáningu. Börnin finna eða búa sjálf til uppskrift og eina krafan er að í henni sé súkkulaði. Þau þurfa að skrifa hana upp, skrifa verklýsingu, skrifa súkkulaðisögu, tvöfalda uppskriftina og síðast en ekki síst að baka eftir uppskriftinni. Að lokinni þessari vinnu er svo haldin uppskeruhátíð þar sem börnin koma með afrakstur vinnunnar og foreldrum er boðið með hátíðlegu boðskorti sem börnin búa sjálf til. Það er skemmst frá því að segja að önnur eins listaverk hef ég varla séð. Skólinn fyllist af glöðum foreldrum og stoltum börnum og það er frábært að hafa fengið að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni sem móðir. Ef þetta er ekki skapandi skólastarf þá skil ég ekki hugtakið. Þetta tiltekna verkefni er einungis eitt dæmi úr mínum skóla og af nógu er að taka. Ég snertist á hverju ári við marga kennara og kem inn í marga skóla og sé að það er svo sannarlega verið að vinna að sköpun með börnunum. Fólk má svo sannarlega hafa skoðanir á skólastarfi. En mér leiðist þegar fólk er með sleggjudóma um hluti sem það hefur ekki kynnt sér nægilega vel. Ég hef kennt í nærri tuttugu ár og tel mig vera að gera góða hluti. Ég vil trúa því að ég hafi skipt máli í lífi þeirra fjölmörgu nemenda sem ég hef kennt á þessum tíma. Ég ber mikla virðingu fyrir starfinu mínu og geri alltaf mitt besta. Ég viðurkenni að stundum finnst mér það ekki nóg. Ég viðurkenni að oft efast ég um ágæti hugmyndastefnunnar Skóli án aðgreiningar. Ég viðurkenni að ég vildi óska að börnunum væri búinn betri kostur. Ég viðurkenni að það vantar fjármagn til að hægt sé til fulls að uppfylla þau markmið sem Aðalnámskráin kveður á um. Ég fullyrði hins vegar að í skólunum starfar upp til hópa gott fólk sem vinnur af hugsjón og áhuga að menntun og velferð barna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Skoðun Að semja gegn sjálfum sér Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson skrifar Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ég ætla að treysta komandi kynslóðum Margrét Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvernig er að eiga sæti við borðið Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Pólitískir vindhanar sem vilja nú hafa afstöðu af þjóð Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun „Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB,“ sagði engin þjóð aldrei Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar
Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun