Er ekki kominn tími til að tengjast? Guðrún Högnadóttir skrifar 25. september 2013 14:21 Spriklandi fersk eftir líkamlega, andlega og félagslega endurhæfingu í faðmi 95 vinkvenna í Barcelona um síðustu helgi varð mér hugsað til þess hversu vanmetinn máttur nærvera er. Hvernig sköpum við tóm til að leysa úr læðingi þá samlegð sem verður til þegar fólk kemur saman – til að hlusta, læra, skapa og styðja hvert annað? Hvernig hlöðum við batteríin þegar meðalvinnuvika íslenskra stjórnenda er 55 klukkustundir samkvæmt stjórnendakönnun VR? Næring, hreyfing og hvíld eru álitnir klassískir orkugjafar, en samkvæmt nýlegum rannsóknum taugasálfræðinga er tenging (e. connection) ein áhrifamesta leiðin til að endurnýja orkubirgðir okkar og auka lífsgæði og er heilanum okkar lífsnauðsynleg. Orka hugans kjarni lífsinsAristóteles sagði að orka hugans væri kjarni lífsins – í lífsspeki Hávamála kemur fram að í félagsskap annarra liggi hamingjan og tilgangurinn. Samkvæmt rannsóknum FranklinCovey er tenging ein af fimm mikilvægustu leiðunum til að brenna ekki út og eykur til muna framleiðni vinnustaða. Einn áhrifamesti starfsánægjuþátturinn skv. Gallup er hvort við eigum „góðan vin í vinnunni“. Leiðir til að auka ánægjuTækifæri til umbóta liggja fyrst og fremst í að breyta viðhorfum okkar og skipulagi og uppskera sem aldrei fyrr með aga, forgangsröðun og gleði. Hér koma nokkrar einfaldar leiðir til að auka framleiðni og ánægju sem munu ekki beygla budduna. — Taktu frá a.m.k. tvær klukkustundir vikulega til að tengjast öðrum án allra hagsmuna. Exedra, LeiðtogaAuður, Rótarý, Ljósið, Stjórnvísi, foreldrahópar og badmintonkvöld eru allt dæmi um vettvang sem hafa þjónað mér vel í gegnum árin. Ÿ Breyttu viðhorfi þínu. Samvera er ekki lúxus sem maður afneitar. Samvera er lífsnauðsynlegur orkugjafi sem mun endurspeglast í þjóðarframleiðslu og lífsgæðum. Settu samverustundir í forgang – t.d. geta sunnudagskvöldverðir í faðmi stórfjölskyldunnar verið uppspretta framúrskarandi næringar inn í vinnuvikuna. — LinkedIn og Facebook eru mikilvæg samskiptatorg. En ekkert kemur í stað alvöru samveru – þar sem við finnum að einhver er virkilega til staðar, veitir okkur óskipta athygli, skorar á okkur og skilur. Kipptu vini með þér í hundalabbitúrinn eftir vinnu eða taktu vinnufundinn gangandi úti – það jafnast ekkert á við að labba og rabba. — Búðu til sjóð opinna spurninga til að koma samtalinu af stað. „Hvað færir þér mesta gleði?“ „Af hverju í síðustu viku ert þú stoltust(astur)?“ „Hvar sérðu sjálfa(n) þig eftir fimm ár?“ „Hvernig samfélag er Ísland í fullkomnum heimi?“ Geðorðin tíu minna okkur á að „reyna að skilja og hvetja aðra í kringum þig“. — Lærðu aftur að hlusta. Notaðu þögnina, ekki þykjast hlusta á meðan þú ert að búa til þitt eigið svar í huganum. Vertu bara til staðar. Samkvæmt kínverskri speki er æðsta gjöfin sem þú gefur nokkrum manni skilningsrík hlustun. Bítlarnir skoruðu á okkur að koma saman. „Come together right now“ – og höldum áfram að hlúa að velferð þjóðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar