Aukinn kaupmáttur launa hjá VR Ólafía B. Rafnsdóttir skrifar 14. september 2013 07:00 Við hjá VR erum ánægð að sjá að starf okkar á undanförnum árum hefur borið árangur, en samkvæmt launakönnun hækkuðu heildarlaun VR-félaga um tæplega 7% á milli áranna 2012 og 2013, sem er ívið meira en launavísitala Hagstofunnar á sama tíma. Kaupmáttur jókst um tæp 3% og er það gleðiefni. En þrátt fyrir að við sjáum bata hjá okkar félögum á vinnumarkaði eru heimili landsins enn að glíma við hátt vöruverð og aukinn kostnað. Okkar brýnasta verkefni er því að tryggja aukinn kaupmátt.Launamunur kynjanna og jafnrétti VR hefur unnið markvisst að því um árabil að útrýma launamun kynjanna og mun halda þeirri vinnu áfram þar til markmiðið næst. Samkvæmt könnuninni er kynbundinn launamunur 9,4% og er því miður óbreyttur frá síðasta ári, þess má þó geta að kynbundinn launamunur hefur lækkað mikið á síðustu árum, en árið 2000 var munurinn 15,3%. Þennan mun er ekki hægt að skýra með lengri vinnutíma karla, menntun þeirra eða hærri stöðu. Þetta er óútskýrður kynbundinn launamunur sem á ekki að þrífast í nútímaþjóðfélagi. Stjórntæki okkar í þessari baráttu er Jafnlaunavottun VR sem kynnt var í upphafi þessa árs, það er öflugt tæki fyrir atvinnurekendur til að tryggja að konur og karlar fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Jafnlaunavottunin byggir á viðurkenndri aðferðafræði sem virkar. Þegar hafa ellefu fyrirtæki og stofnanir fengið Jafnlaunavottun VR og geta með sanni sagt að hjá þeim ríki jafnrétti kynjanna til launa. VR bindur miklar vonir við að Jafnlaunavottunin muni skila áþreifanlegum árangri í baráttunni fyrir jafnrétti innan örfárra ára.Forysta VR VR hefur verið í forystu í baráttunni fyrir jafnrétti karla og kvenna undanfarin ár og áratugi. Margt hefur áunnist í þeirri baráttu og ruddi VR meðal annars brautina fyrir nýjum fæðingarorlofslögum fyrir rúmum áratug, þegar félagið hóf að greiða félagsmönnum 80% laun í fæðingarorlofi úr sjúkrasjóði félagsins. Einnig hefur VR staðið fyrir herferðum um jafnréttismál sem iðulega hafa vakið mikla athygli og vitundarvakningu um stöðu kynjanna á vinnumarkaði.Millitekjuhópurinn og starfsmennt á oddinn Millitekjuhópurinn tók á sig mikla kjaraskerðingu í hruninu, en þeir sem hafa hærri laun hafa fengið meiri hækkanir á sín laun. Millitekjuhópurinn er stór hópur á vinnumarkaðinum sem hefur lagt hvað mest af mörkum við að koma atvinnulífinu aftur í gang. VR mun berjast fyrir því að rétta hlut þessara félagsmanna í næstu kjarasamningum. Verkalýðshreyfingin hefur ætíð lagt kapp á að styrkja stöðu þeirra sem hafa lægstu launin og var megináhersla lögð á að verja kaupmátt lágmarkslauna í síðustu kjarasamningum. Það skilaði áþreifanlegum árangri – en verkinu er ekki lokið. Við verðum sífellt að leita nýrra leiða til að efla félagsmenn okkar í starfi og bæta kjör þeirra. Það er ástæða þess að VR mun leggja áherslu á starfsmenntamálin í þessum kjarasamningaviðræðum, einkum menntun og fræðslu starfsmanna í verslun og þjónustu. Aukin menntun felur í sér ný tækifæri og við viljum leggja félagsmönnum lið við að auka þekkingu sína og bæta þar með kjör sín. Við förum inn í kjarasamningaviðræðurnar með nýjar tillögur í farteskinu og bindum vonir við að allir leggist á eitt til að tryggja réttláta niðurstöðu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar