Lestur er bestur – spjaldanna á milli Ragnhildur Sigríður Birgisdóttir skrifar 7. september 2013 06:00 8. september er alþjóðadagur læsis. Allt frá árinu 1965 hefur UNESCO, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, tileinkað deginum málefni læsis og lýst því yfir að læsi sé kjarni alls náms og snerti alla, bæði börn og fullorðna. Í ár er svo Bókasafnsdagurinn mánudaginn 9. september undir slagorðinu „Lestur er bestur – spjaldanna á milli“. Víða er haldið upp á þessa daga, um þá er fjallað í fjölmiðlum og Bókasafnsdagurinn notaður til að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu. Hér gefst skólasöfnum tækifæri til að láta að sér kveða. Nú þegar nýlegar niðurstöður úr reglubundinni lesskimun skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar upplýsa okkur um að aðeins 69% barna í 2. bekk geta lesið sér til gagns er brýnt að skólasöfn nái til notenda sinna og sái nokkrum góðum yndislestrarfræjum meðal þeirra. Skólasöfn grunnskólanna hafa átt undir högg að sækja en eiga sér nú uppreisnar von með nýrri aðalnámskrá. Þar á að fara fram fræðsla á sviði upplýsinga- og tæknimenntar sem felst í að efla upplýsinga- og miðlalæsi allra nemenda skólans. Það er ekki óalgengt að skólasafn og tölvuver skóla séu aðskilin en með hraðri þróun í upplýsingatækni er nokkuð ljóst að hér er um sameiginlegan náms- og þekkingarvettvang að ræða sem í nýrri aðalnámskrá kallast upplýsingaver. Í upplýsingaveri þykir sjálfsagt að veita notendum jafnan aðgang að bóklegum og rafrænum upplýsingum. „Lestur er bestur – spjaldanna á milli“ á við hvort sem nemandi situr við tölvu eða er með bók í hendi. Í lögum um grunnskóla frá 2008 nr. 91 er fjallað um skólasafnið sem upplýsingamiðstöð eða upplýsingaver. Þar segir að upplýsingamiðstöðin eigi að vinna að bættri menntun allra nemenda og vera í nánum tengslum við skólasamfélagið. Í upplýsingamiðstöð eiga nemendur að hafa aðgang að og geta nýtt sér ýmis tæki og gögn. Þar á að skapast vettvangur í að efla læsi í víðum skilningi. Í aðalnámskrá er jafnframt lögð áhersla á notkun fjölbreyttra gagna svo sem bóka, annarra safngagna, tölva og búnaðar til upplýsinga- og þekkingaröflunar, sköpunar og miðlunar. Nú er nokkuð ljóst að ekki er nóg að gera kröfur til kennara og starfsfólks grunnskóla og hafa væntingar til bættrar menntunar grunnskólanemenda með því að leggja fram nýja aðalnámskrá ef ekki eru til staðar nauðsynleg gögn og búnaður, metnaður stjórnenda og skilningur rekstraraðila grunnskóla. Þessir aðilar bera ábyrgð á að lögum sé fylgt og þar með að sjá kennurum og nemendum fyrir þeim búnaði sem til þarf við innleiðingu nýrrar aðalnámskrár sem leggur áherslu á læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Mikilvægis læsis í samfélagi barna okkar er gríðarlega mikið. Ef við horfum aðeins til upplýsinga- og miðlalæsis þá flæða upplýsingar að börnum úr öllum áttum í formi afþreyingar og auglýsinga frá miðlum, umhverfi og frá netinu gegnum farsíma, snjallsíma, ipad, iphone eða spjaldtölvur. Við verðum að viðurkenna að sennilega eru nemendur grunnskólanna vanari hraða og áreiti en rólegheitum, þolinmæði og nákvæmni. Grunnskólanum ber skylda til að mæta þessum þörfum skólasamfélagsins og stuðla að auknu upplýsingalæsi jafnframt því að leggja áherslu á notalega stund með bók í hendi. Hver vill taka stundina frá börnum þar sem þau þeysast á vit ævintýraheima hugans í dagdraumi á skólasafni með fætur upp í loft eða með bók uppi í rúmi í leit að góðum nætursvefni? Í Reykjavík hittast forstöðumenn grunnskólasafna mánaðarlega hjá Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur í Hvassaleitisskóla við Háaleiti. Þar eru kynntar nýútgefnar bækur og rædd gæði þeirra fyrir nemendur grunnskólans. Horft er til ýmissa læsisþátta svo sem leturgerðar, myndefnis og hvort boðskapurinn sé áhugaverður og líklegur hvati til lesturs. Forstöðumenn deila jafnframt hugmyndum sín á milli sem hugsanlega gætu haft aðdráttarafl á nemendur og verið þeim lestrarhvatning. Fagleg vitund forstöðumanna skólasafna er augljóslega mikil. Þeir eru almennt kennarar með viðbótarmenntun í upplýsingafræðum eða bókasafns- og upplýsingafræðingar með menntun á sviði uppeldis- og kennslufræða. Forstöðumenn skólasafna eru vakandi yfir því efni sem berst að skólasöfnum og reyna eftir fremsta megni að leiðbeina nemendum við að velja lesefni við hæfi og stuðla jafnframt að því að skólasafnið þjóni þörfum þeirra. Félag fagfólks á skólasöfnum (FFÁS) er félag forstöðumanna skólasafna grunnskóla. Félagið starfar á landsvísu og er með aðalstöðvar í Kópavogi. Stjórn félagsins fundar mánaðarlega og meginmarkmið þess er að standa vörð um starfsemi skólasafna, vera vakandi fyrir öllu sem viðkemur skólasöfnum og styrkja samstarf skólasafna við fagfélög sem hvetja til útgáfu og lesturs grunnskólanema. Fram undan eru sannarlega góðæristímar bókasafna; alþjóðadagur læsis 8. september, Bókasafnsdagurinn 9. september, bókmenntamánuður Reykjavíkur í október, þegar ljóðin sækja að borgarbúum úr ólíklegustu áttum, og Norræna bókasafnsvikan í nóvember, sem kemur til með að minna okkur á kalda vetur á norðurhveli jarðar. Þrátt fyrir hraðar breytingar og auknar tæknilegar kröfur til skólasafna er mikilvægt að skólasöfn leyfi sér að vera áfram hjarta skólans þar sem nemendur og starfsfólk geta leitað sér hugarþægðar og hugarróar og þar sem „Lestur er bestur – spjaldanna á milli“. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar