Snúum vörn í sókn Snorri Sigurjónsson skrifar 22. ágúst 2013 09:00 Eins og sést á myndum sem hafa verið birtar að undanförnu af fossinum Dynk í Þjórsá hefur vatnsrennsli verið skert mikið eða um 40% með tilkomu Kvíslaveitu. Lítið þarf til að gera vegslóð að þessu höfuðdjásni Þjórsárfossa þannig að sem flestir gætu notið og vel mætti hugsa sér gönguleiðir upp og niður með ánni til að skoða aðra fossa á þessu svæði. Sumir segja Dynk með náttúrulegu vatnsrennsli ekki síðri en Gullfoss og í raun furðuleg ákvörðun að hafa leyft þessa skerðingu á fossinum á sínum tíma. Sennilega gert í skjóli þess hvað fáir höfðu séð hann. Hvort er nú meira virði að slátra þessu alveg eins og nú er áformað, eða að fara að ráðum Ómars Ragnarssonar og snúa til baka með því að auka vatnsrennslið þótt það gæti kostað einhverjar kílóvattstundir?Fossinn Dynkur Vatnsrennsli í fossinum hefur minnkað til muna síðustu ár.Í þessu samhengi verður mér hugsað til allra fossanna í Jökulsá í Fljótsdal sem nú eru komnir í lokuð göng. Já, það var sorglegt hlutskipti að horfa upp á það sem gerðist fyrir austan, rétt eins og um náttúruhamfarir hafi verið að ræða en ekki mannanna verk sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir. Hefði fólk verið betur upplýst og fengið tækifæri til að njóta þess sem þarna var fórnað áður en til framkvæmda kom er ég viss um að þetta hefði aldrei orðið. Um aðgengi lít ég til þess undraheims sem opnaðist við að brúa Jökulsá á Fjöllum og Kreppu á sínum tíma. Það hefði kostað lítið að gera eitthvað svipað fyrir austan, t.d. að lagfæra vegslóðir og brúa Jöklu og Jökulsá í Fljótsdal inni á hálendinu þannig að fólk hefði með eigin augum getað áttað sig á þeim náttúruauðæfum sem nú hefur verið drekkt eða skrúfað fyrir. Það var svo sannarlega þess virði að ganga nokkrum sinnum með Jökulsá í Fljótsdal þótt sú ganga hafi verið tregafull vitandi hvaða örlög biðu allra fallegu fossanna. Minnisstæðir eru Ufsarfoss, Hrakstrandarfoss, Tungufoss, Kirkjufoss, Faxi, Stóralækjarfoss, Raufarfoss og Stíflufoss, hver með sitt svipmót umvafðir gróðri og fallegum bergmyndunum með Snæfell í baksýn. Hið sama má segja um Kelduá, sem fáir virðast hafa heyrt nefnda. Þar var fórnað ekki síður fallegum fossum sem ég kann ekki nöfn á nema á hinum einstaka Brúðarfossi. Meðfram ánni var mikið lífríki, fallegar eyrarrósabreiður, birki og fjöldi smáplantna sem ekki þrífast án árinnar. Þessari fegurð sem var við hvert fótmál var því slátrað líka. Um ýmsar framkvæmdir á landi hér hefur ríkt nokkuð góð sátt, en ömurlegt er til þess að vita að kjörnir fulltrúar með stóriðjublindu hafi orðið þess valdandi að um einstök náttúrufyrirbæri verði aðeins til sorglegar minningargreinar þegar fram líða stundir. Við sem svo auðveldlega gætum verið sjálfum okkur nóg með rafmagn án svona fórna og haft unað og raunverulegar tekjur til framtíðar af náttúrugæðum. Ekki amalegt fyrir stóriðjusinna að hafa nú fengið til liðs við sig iðnaðar- og umhverfisráðherra, ungt og kraftmikið fólk með gamaldags hugmyndir til að viðhalda vitleysisganginum! Þetta var um fossa og enn frekari áform um að fækka þeim með aðför að rammaáætlun, en það er svo miklu, miklu meira sem okkur hefur verið trúað fyrir og er í stórhættu fyrir fólki sem misskilur hlutverk sitt. Við höfum vélarnar, tæknina og mennina til að umturna Íslandi. Nýtum þá krafta frekar til góðra verka og gleymum ekki að á umliðnum árum hefur tekist að bjarga ýmsu frá voðaverkum. Betur má þó ef duga skal til að opna augu skammsýnna manna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar