Ofsóknir og vænisýki Heimir Már Pétursson skrifar 21. ágúst 2013 07:00 Sem fjölmiðlamaður í á þriðja áratug get ég ekki lengur setið þögull hjá og fylgst með því sem ekki er hægt að kalla annað en ofsóknir gegn starfsfélögum mínum á Ríkisútvarpinu. Það er sorglegt og raunar ekkert annað en ógnvænlegt hvernig hluti valda- og á stundum forréttindastéttarinnar í landinu ræðst ítrekað með ruddalegum dólgshætti að fréttastofu Ríkisútvarpsins og oft nafngreindum fréttamönnum þar. Þetta er slíkur ruddaskapur að sæmir ekki siðuðu samfélagi sem, í orði alla vega, kennir sig við lýðræði. Fjölmiðlafólk er ekki frekar en annað fólk, og þá heldur ekki stjórnmálamenn, óskeikult. Öllum verður á að gera mistök í starfi og þegar það gerist er eðlilegt að gagnrýna það og að sama skapi eðlilegt að leiðrétta mistökin. En hluti valdastéttarinnar ræðst með slíku offorsi að fréttastofu Ríkisútvarpsins af oftast ímynduðum og smáum forsendum, að ómögulegt er annað en setja þessa heift í samhengi við pólitískt valdatafl og mannvonsku þar sem einskis er svifist. Það er ömurlegt upp á að horfa svo mánuðum skiptir hvernig t.d. ritstjóri Morgunblaðsins, sem eitt sinn var vant að virðingu sinni, ræðst af blindri heift og vænisýki að fréttastofu Ríkisútvarpsins. Það er augljóst öllum sem fylgjast með og ekki eru innmúraðir í valdaklíkuna, að ástæða árásanna er ekki óvönduð eða óeðlileg vinnubrögð fréttamanna Ríkisútvarpsins heldur ólundin, heiftin og hatrið sem vaknar með þessum hluta valdastéttarinnar þegar blaða- og fréttamenn voga sér að segja tilteknar fréttir sem er fullkomlega eðlilegt að greina frá. Það er nefnilega skoðun þessa hluta valdastéttarinnar sem leggur allt í sölurnar til að halda í alla valdatauma samfélagsins, að tilteknar fréttir eigi yfirleitt og aldrei að segja. Vegna þess að það þjónar ekki hans hagsmunum. Hvaða fréttir þetta eru vita allir sem fylgjast með, hvort sem þær eru um hrunið og aðdraganda þess, umhverfismál, auðlindamál eða utanríkismál. Þessi hópur fólks þolir ekki lýðræðislega og opna umræðu. Er beinlínis í nöp við hana. Hann vill stýra umræðunni og ráða því alfarið hvað sagt er í fjölmiðlum og hvað má alls ekki undir nokkrum kringumstæðum segja þar. Fólk sem hugsar með þessum hætti er til óþurftar í lýðræðislegu samfélagi og er því raunar einstaklega hættulegt. Um það vitnar mannkynssagan. Ég hef skrifað um og fylgst með stjórnmálum frá mörgum hliðum og á víðum vettvangi stjórnmálanna í um 25 ár. Yfirleitt hafa þeir stjórnmálamenn sem setið hafa á þingi, í ríkisstjórn eða í sveitarstjórnum verið hið ágætasta fólk sem vill samfélagi sínu vel, hvar í flokki sem það er. En því er ekki að leyna að hvergi getur vænisýkin náð öðrum eins hæðum og meðal stjórnmálamanna þegar sá gállinn er á þeim. Það er kannski vegna þess að margir þeirra þrífast á samsærum, baknagi, svikum og prettum til að ná sínu fram, hvort sem það snertir persónulega hagsmuni þeirra sjálfra, eða hagsmuni sem þeir beita sér fyrir og vilja með góðu eða illu troða ofan í þjóðina. En nú hefur heiftin og vænisýkin náð slíkum hæðum að öllu siðuðu fólki hlýtur að vera ofboðið. Það er eðlilegt að tekist sé á um skipulag, tilgang og umfang starfsemi eins mikilvægrar stofnunar og Ríkisútvarpið er. Það er líka eðlilegt að til þess sé ætlast að Ríkisútvarpið fari vel með fjármuni almennings og virði öll bestu samkeppnislögmál sem hugsast má. En það er langt í frá eðlilegt eða þolandi að í samfélagi sem vill vera lýðræðislegt og þar með virða leikreglur lýðræðisins dreifi hluti valdastéttar landsins úr innstu kömrum sínum yfir fréttastofu Ríkisútvarpsins og einstaka starfsmenn hennar eins og gert hefur verið um nokkurra missera skeið. Þar eins og á öðrum miðlum, þar með Morgunblaðinu, vinnur gott fólk sem kann sitt fag sem frétta- og blaðamenn og dagskrárgerðarfólk. Það er mál að þessum heiftúðlegu og fullkomlega órökstuddu, vænisjúku árásum á fréttastofu Ríkisútvarpsins linni og það strax og menn tileinki sér lýðræðislega umræðuhefð þar sem það er talið eðlilegt að ólíkar skoðanir og viðhorf fái að koma fram og njóta sín. Það er öllu samfélaginu til heilla, líka hinum vanstilltu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar