Einkavæðing og íslensk framleiðsla leggst af Guðjón Viðar Guðjónsson skrifar 25. júlí 2013 07:00 „Við teljum litlar líkur á að aftur verði byrjað að framleiða sement á Íslandi,“ segir stjórnarformaður Sementsverksmiðjunnar (SV). Þetta virðist ætla að ganga eftir og áætlun Norcem, eins eigenda SV, um að leggja af verksmiðjuna, hefur verið í bígerð síðan þeir eignuðust 34% hlut í SV og 20% í Björgun, sem á aftur 34% í SV. Norcem varð þannig ráðandi aðili í SV og sem stærsti framleiðandi á sementi í Noregi ætlaði fyrirtækið sér aldrei að hasla sér völl í framleiðslu á sementi á Íslandi. Að fenginni reynslu eftir langt starf hjá SV og sem trúnaðarmaður er ljóst að eigendur SV munu koma sér undan því að fjarlægja verksmiðjuna þegar hún er ekki í notkun lengur. Ég verð að treysta því sem eigendur segja og bið bæjarfulltrúa Akranes að gæta sín í viðræðum við þessi fyrirtæki. Árið 2003 hallaði undan hjá SV svo að gjaldþrot blasti við og SV var einkavædd. Af fjórum kaupendum var BM Vallá með fjórðungshlut og Norcem með jafnstóran hlut. Kaupverðið átti að vera 67 milljónir. Í stjórn SV settust þá feðgarnir Víglundur Þorsteinsson og Þorsteinn Víglundsson og höfðu mikil áhrif þótt þeir ættu ekki nema 25%. Þeir gerðu samning um að þeirra fyrirtæki, Vallá, bæri ekki vexti af viðskiptaskuld við SV fyrstu fimm árin sem þeir væru í viðskiptum við SV.Spurning um lögbrot Upp úr þessu kærði danskur innflytjandi sölu SV til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA. Hann taldi að um ríkisstyrk væri að ræða. Skuld BM Vallá við SV mun hafa verið um 400 milljónir. Síðan virðist það ákvörðun stjórnenda SV, Víglundar, Þorsteins og endurskoðenda SV, að fela þessa skuld fyrir ESA og fjarlægja úr bókhaldi. Árið 2007 var þessi skuld bakfærð aftur inn í bókhaldið. Spyrja má hvort ekki sé um lögbrot að ræða þegar skuldir eru látnar hverfa svona úr bókhaldi. Á næstu árum voru Þorsteinn, Víglundur og Norcem allsráðandi og höfðu ráðið til sín framkvæmdastjóra sem fylgdi þeim í einu og öllu. Viðhald drabbaðist niður og verksmiðjan var blóðmjólkuð eins og mörg önnur fyrirtæki sem höfðu verið einkavædd. Tilefni er að rannsaka þessa einkavæðingu ásamt öðrum er voru gerðar á tímum Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Þrátt fyrir metsölu á sementi fyrir hrun fór svo að eftir bankahrunið stóð SV ekki undir minnkandi sölu, skuldsetningu og samkeppni við niðurgreitt sement. Verksmiðjan varð því gjaldþrota 2009. Eftir að Arion banki tók við rekstrinum má segja að dyr hafi opnast fyrir Norcem að taka yfir verksmiðjuna. Í október 2011 var síðasta sementið framleitt á Íslandi og innflutningur aukinn frá Noregi. Ekki er Norcem að hagnast á þessum innflutningi og betra að borga með innflutningi en að byrja framleiðslu á ný. Eigendurnir hafa þann möguleika að skipta verksmiðjunni í tvö fyrirtæki; innflutning og framleiðslu. Þeir geta haldið innflutningsfyrirtækinu eftir og látið framleiðsluna í gjaldþrot en undir framleiðsluna falla stærstu byggingarnar á verksmiðjulóðinni. Í íslensku sementi eru næstum öll hráefni innlend, flytja þurfti inn kol til brennslu framleiðslunnar. Það sorglega er að þessi hluti íslenskrar byggingarsögu er að hverfa og öllum virðist sama, enginn hugsar um gjaldeyrissparnaðinn af íslensku framleiðslunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
„
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar