Tákngervingur spillingar á toppi Úlfarsfells Hafþór Sævarsson skrifar 25. júlí 2013 07:00 Undirritaður er einn þeirra sem kærðu byggingarleyfi fyrir mannvirkjum Vodafone á toppi Úlfarsfells. Þann 10. september sl. felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála byggingarleyfið úr gildi og viðurkenndi lögvarða hagsmuni m.a. undirritaðs.Ólöglega staðsett mannvirki Þann 4. maí birtist grein eftir talsmann Vodafone sem segir fyrirtækið tilbúið til að „vinna með öllum sem hagsmuna [eiga] að gæta að viðunandi lausn á málinu“. Í framhaldinu hringdi undirritaður í Hrannar Pétursson, talsmanninn, þar sem fram kom að engin teikn væru á lofti um að flytja umrædd mannvirki óháð því að þau brjóti lögvarða hagsmuni almennra borgara. Samstarfsvilji Vodafone byggist þannig á því að aðilar vinni saman að hagsmunum Vodafone. „Viðunandi lausn” fyrirtækisins er í því fólgin að mannvirkin standi með góðu eða illu á toppi Úlfarsfells óháð rétti borgaranna; eiginlegur samstarfsvilji Vodafone er orðin tóm. Á vordögum 2012 báðu íbúar starfsmenn Vodafone vinsamlegast að bíða með framkvæmdir þangað til úrskurður umræddrar kæru byggingarleyfisins lægi fyrir. Kærendur töldu að byggingarleyfi, sem hvorki hafði deiliskipulagningu né meðmæli Skipulagsstofnunar (eins og lög gera ráð fyrir) til grundvallar, yrði fellt úr gildi. Í stað þess að starfsmenn Vodafone sýndu almennum borgurum tillitsemi og iðkuðu sjálfir þau gildi sem fyrirtækið hefur auglýst af miklum dugnaði þ. á m. þolinmæði, virðingu og góð samskipti, þá keyrði Vodafone í boði byggingarfulltrúa Reykjavíkur framkvæmdirnar í gegn í miklum flýti á meðan kæran var til meðferðar.Stjórnvöld bregðast ekki við Eftir ógildingu byggingarleyfisins hafa mannvirkin fengið að standa óáreitt í átta mánuði á toppi Úlfarsfells. Byggingarfulltrúi hefur ekki nýtt lagaheimild til að fá mannvirkin fjarlægð þrátt fyrir ítarlega rökstuddar athugasemdir þess efnis að honum beri skylda til þess. Athugasemdunum hefur ekki verið svarað. Mannvirkjastofnun, sem hefur eftirlitshlutverk með byggingarfulltrúa, hefur ekki komist að niðurstöðu þrátt fyrir formlega ábendingu á síðastliðnu ári.Rannsóknarvinna ekki unnin Engin sjálfstæð greinargerð hefur verið unnin í þessu máli sem sýnir fram á þörf fyrir umrædd mannvirki eða heppilega staðsetningu fyrir þau. Þeim sem hagsmuna eiga að gæta vegna nálægðar við fjallið, útivistargildis þess eða á grundvelli náttúruverndar var enginn kostur gefinn til að gera athugasemdir né voru grundvallaratriði málsins rannsökuð. Eftir fund sem undirritaður sat með lögfræðingum borgarinnar og borgarstjóra fyrir um ári sagði lögfræðingur um upplifun embættismanna að þeir hefðu ekki haft hugmynd um hversu vinsælt og ástsælt fellið væri til útivistariðkunar! Sveitarfélag gegnir þeirri skyldu að vega og meta hagsmuni ólíkra sjónarmiða. Í þessu máli framselur byggingarfulltrúi það ákvörðunarmat sitt og eiginlega rannsóknarskyldu til Vodafone sem meðal annars heldur þeirri grátbroslegu hugmynd fram í „greinargerð“ sinni um málið að toppur Úlfarsfells sé ekki sá staður þar sem besta útsýnið fáist af fjallinu. Nú á það við um Úlfarsfell sem og fjöll almennt að hæsti tindurinn skyggir á útsýni annars staðar á fjallinu en þessi staðreyndarvilla er nýtt sem forsenda í greiningu Vodafone á útivistargildi fellsins.Tákngervingur spillingar Kóróna útivistarparadísar borgarbúa hefur verið ólöglega afhent stórfyrirtæki á silfurfati (skv. úrskurði). Áður en hin ólöglega staðsettu mannvirki verða fjarlægð tróna þau á toppi Úlfarsfells sem tákngervingur samkrulls stórfyrirtækis sem iðkar ekki sín auglýstu gildi og stjórnsýslu sem fylgir ekki lögum og reglum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Skoðun Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Sjá meira
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun