Forsíðan í Hádegismóum Baldur Þórhallsson skrifar 22. júlí 2013 07:00 Sundrung innan raða stjórnarflokkanna, og þá einkum innan Vinstri grænna, er ef til vill helsta ástæða þess afhroðs sem þeir guldu í síðustu alþingiskosningum, þó að fjölmargar aðrar ástæður komi einnig við sögu. Enginn virðist sjá sér hag í því að rifja upp þá ógæfu sem fylgdi því að standa í sífelldri kattasmölun. Skoðanakannanir sýna að kjósendur telja að flokkarnir hafi ekki framfylgt mikilvægum stefnumálum. Klofningur og ágreiningur voru meginástæður þess. Í kjölfarið misstu flokkarnir trúverðugleika, sem er forsenda tiltrúar kjósenda á stjórnmálamönnum. Stöðugar skylmingar þingmanna leiddu til mannfalls í eigin röðum og gengu nærri grasrótinni. Þetta yfirskyggði þann mikla árangur sem náðist. Ágreiningur innan flokkanna gerði það að verkum að ekki var hægt að ljúka við endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu og koma á skikkanlegu auðlindagjaldi. Viðræður við ESB voru í hægagangi vegna framgöngu einstakra ráðherra og þegar Samfylkingin féllst formlega á að hægja á þeim var endanlega gert út um trúverðugleika flokksins. Stóriðjubrölt Vinstri grænna varð heldur ekki til þess að auka trúverðugleika þeirra. Icesave-samningarnir voru eitt samfellt klúður sem klauf flokkana og ekki var einu sinni talað fyrir þeim þegar á reyndi. Erfitt var að ná saman um skuldamál heimilanna. Landsdómsmálið kristallaði mismunandi sýn á uppgjörið við hrunið. Enga sameiginlega sýn var heldur að finna um inntak nýrrar stjórnarskrár né hvort sverfa ætti til stáls í málinu. Ekkert lát var á togstreitu þingmanna vegna kjördæmapots. Samfylkingunni var refsað harkalega fyrir að hafa hvorki tekist að koma helstu stefnumálum sínum í framkvæmd með Vinstri grænum né Sjálfstæðisflokknum. Klofningur innan þingflokks Vinstri grænna gerði hann nær óstjórntækan. Stór hluti hans yfirgaf flokkinn og Samfylkingin klofnaði einnig. Þingmennirnir létu fjölmiðla trekkja sig upp líkt og spiladósir og dönsuðu í hringi í kringum sjálfa sig. Það virðist vera mikið gert og mörgu fórnað til að komast á forsíðuna í Hádegismóum. Vinstrimönnum tókst með einstökum hætti, enn eina ferðina, að grafa undan sjálfum sér og eigin trúverðugleika. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Skoðun Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Sjá meira
Sundrung innan raða stjórnarflokkanna, og þá einkum innan Vinstri grænna, er ef til vill helsta ástæða þess afhroðs sem þeir guldu í síðustu alþingiskosningum, þó að fjölmargar aðrar ástæður komi einnig við sögu. Enginn virðist sjá sér hag í því að rifja upp þá ógæfu sem fylgdi því að standa í sífelldri kattasmölun. Skoðanakannanir sýna að kjósendur telja að flokkarnir hafi ekki framfylgt mikilvægum stefnumálum. Klofningur og ágreiningur voru meginástæður þess. Í kjölfarið misstu flokkarnir trúverðugleika, sem er forsenda tiltrúar kjósenda á stjórnmálamönnum. Stöðugar skylmingar þingmanna leiddu til mannfalls í eigin röðum og gengu nærri grasrótinni. Þetta yfirskyggði þann mikla árangur sem náðist. Ágreiningur innan flokkanna gerði það að verkum að ekki var hægt að ljúka við endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu og koma á skikkanlegu auðlindagjaldi. Viðræður við ESB voru í hægagangi vegna framgöngu einstakra ráðherra og þegar Samfylkingin féllst formlega á að hægja á þeim var endanlega gert út um trúverðugleika flokksins. Stóriðjubrölt Vinstri grænna varð heldur ekki til þess að auka trúverðugleika þeirra. Icesave-samningarnir voru eitt samfellt klúður sem klauf flokkana og ekki var einu sinni talað fyrir þeim þegar á reyndi. Erfitt var að ná saman um skuldamál heimilanna. Landsdómsmálið kristallaði mismunandi sýn á uppgjörið við hrunið. Enga sameiginlega sýn var heldur að finna um inntak nýrrar stjórnarskrár né hvort sverfa ætti til stáls í málinu. Ekkert lát var á togstreitu þingmanna vegna kjördæmapots. Samfylkingunni var refsað harkalega fyrir að hafa hvorki tekist að koma helstu stefnumálum sínum í framkvæmd með Vinstri grænum né Sjálfstæðisflokknum. Klofningur innan þingflokks Vinstri grænna gerði hann nær óstjórntækan. Stór hluti hans yfirgaf flokkinn og Samfylkingin klofnaði einnig. Þingmennirnir létu fjölmiðla trekkja sig upp líkt og spiladósir og dönsuðu í hringi í kringum sjálfa sig. Það virðist vera mikið gert og mörgu fórnað til að komast á forsíðuna í Hádegismóum. Vinstrimönnum tókst með einstökum hætti, enn eina ferðina, að grafa undan sjálfum sér og eigin trúverðugleika.
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun