Er Seðlabankinn miðstöð skipulegrar brotastarfsemi ? Þorsteinn Víðir Þórðarson skrifar 10. júlí 2013 06:00 Hilda ehf., dótturfélag Seðlabanka Íslands, var stofnað 2009 til að halda utan um og innheimta skuldabréf einstaklinga og smærri fyrirtækja og ætlað að hámarka virði safnsins eins og segir í skýrslu S.Í. Ekki var pláss fyrir félagið í húsakynnum bankans og ekki hafði S.Í. efni á að skrá síma hjá Hildu og því var holað niður á 15. hæð að Borgartúni 2. Hildu var sem sagt ætlað að hámarka eignasafnið, en fara hljóðlega að því. Til þess var fenginn undirverktaki að nafni Drómi, en það fyrirbæri er skilgetið afkvæmi Seðlabanka, FME og fjármálaráðuneytis. Drómi var sem sé í hlutverki handrukkarans á götunni og látinn beita öllum tiltækum ráðum, ólöglegum sem löglegum, að undirlagi Hildu ehf. Takið eftir, nákvæmlega sömu vinnubrögð og hjá dópsölum. Af hverju var Hilda ehf. ekki skráð á Sikiley ? Þrátt fyrir marga dóma Hæstaréttar um hvernig eigi að reikna út ólögleg gengistryggð lán og bannað afturvirka vexti hefur Drómi hunsað þessa dóma og skipulega reynt að rugla skuldara með alls konar tilvitnunum í dóma um bílasamninga, sem koma fasteignalánum ekkert við. Allt gert til að rugla almenning í ríminu. Munum, að það var Seðlabankinn sem sendi út leiðbeinandi reglur til fjármálafyrirtækja, eftir að ljóst var að gengistryggðu lánin voru ólögleg, um að reikna seðlabankavexti aftur í tímann. Fjölmargir aðilar vöruðu við þessu sem brot á stjórnarskrá. Hæstiréttur hefur staðfest að svo sé. Munum einnig að FME lýsti yfir stuðningi við þessar reglur og einnig ríkisstjórnin, sem setti í kjölfarið svokölluð ÁrnaPáls-lög. (Hissa á fylgistapi?). Maður spyr sig af hverju S.Í. er svo tregur til að lækka stýrivexti. Er það vegna eigin lánasafna?Eftir höfðinu dansa limirnir Aðrar peningastofnanir á landinu hafa S.Í. sem fyrirmynd og hunsa lög og reglur, samanber Landsbankinn sem dregur lappirnar endalaust og Lýsing, sem er margdæmd fyrir brot, lýsir nú yfir að skuldarar geti lýst kröfu á hendur þeim. Þeir ætla sem sé ekkert að gera og virðast komast upp með það.Sjálfdæmi Hvernig stendur á því í þessu landi, sem kallar sig lýðræðisríki og að allir séu jafnir fyrir lögum, er dæmdum glæpafyrirtækjum veitt sjálfdæmi um hvort farið sé eftir dómum HR eða ekki. Hvað ef við snúum dæminu við og gengistryggingin verið dæmd lögleg, hefðu þá skuldarar sjálfdæmi um hvort þeir borguðu eða ekki? Til að fá úr þessu skorið hef ég kært til Sérstaks saksóknara framferði og útreikningsaðferðir Seðlabankans og Hildu ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar