Engir tveir nemendur eru eins Guðrún Helga Sederholm skrifar 10. júlí 2013 06:00 Undanfarið hefur verið bent á að þjónusta þurfi nemendur í framhaldsskólum betur en gert hefur verið þegar kemur að persónulegum málum þeirra. Eitthvað hefur verið um að skólameistarar hafi brugðist við þessu með því að fá sálfræðinga til að þjónusta nemendur. Umræðan er komin af stað og er það gott með tilliti til nemenda. Ég hef verið óþreytandi í að benda stjórnvöldum og öðrum á mikilvægi þess að nemendum gefist kostur á slíkri þjónustu nú síðast í mars og apríl birtust greinar eftir mig um einmitt þetta hér í Fréttablaðinu. Ég hef farið á fund fyrrverandi menntamálaráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, með erindið, var kölluð fyrir menntamálanefnd Alþingis, 17. mars 2008, til að veita ítarlegar upplýsingar vegna frumvarpa sem voru til umræðu um leik-, grunn- og framhaldsskólalög. Formaður nefndarinnar, Sigurður Kári Kristinsson, sagði eftir að hafa hlýtt á orð mín, að nefndin þyrfti greinilega að skoða ráðgjafarmál í skólum enn frekar. Margar álitsgerðir hef ég skrifað og skilað til Alþingis og aldrei legið á skoðun minni þegar ég hef unnið að stofnun og þróun náms- og starfsráðgjafar fyrir menntamálaráðherra, Svavar Gestsson og Björn Bjarnason, með tíu ára millibili, alltaf lagt áherslu á að þjónusta þyrfti nemendur í persónulegum málum ekki síður en í námstengdum málum.Þarf rétta greiningu Nemandi sem á í erfiðleikum í skóla þarf að fá rétta greiningu á vanda sínum, hvort sem hann er námstengdur eða af öðrum orsökum. Hingað til hefur aðeins verið boðið upp á náms- og starfsráðgjöf í grunn-og framhaldsskólum, innan skólans, sem er gott í sjálfu sér en engan veginn nægjanlegt til að tryggja öryggi og velferð nemandans. Nú hafa augu skólameistara opnast en nokkrir þeirra og nokkrir skólastjórar grunnskóla hafa valið að ráða félagsráðgjafa í stöður náms-og starfsráðgjafa til að bregðast við þörf nemenda fyrir persónulegri ráðgjöf á undanförnum árum. Starfslýsing félagsráðgjafa á fræðslu- og skólasviði hefur verið til í nokkur ár og í henni segir m.a.: „Félagsráðgjafi er lögverndað starfsheiti. Heildarsýn er leiðarljós í allri vinnu félagsráðgjafa. Hún felur í sér að gaumgæfa félagslegar, tilfinningalegar og námslegar aðstæður einstaklinga sem þeir vinna með hverju sinni.“ Hún fjallar um persónulega ráðgjöf, greiningu á vanda, skólaráðgjöf, forvarnir, foreldraráðgjöf og ráðgjöf við skólastjórnendur og kennara svo fátt eitt sé nefnt. Auk þess sinna félagsráðgjafar allri almennri vernd barna og ungmenna og eru sérfræðingar á því sviði t.d. með þátttöku í stýrihópum, nefndum og ráðum sem fjalla um stefnumótun. Vandi nemanda sem kvartar undan leti og einbeitingarskorti getur átt sér allt aðrar ástæður en námstengdar. Hann býr hugsanlega við ofbeldi, einelti, fátækt, sjálfsvígshugleiðingar, kvíða, þunglyndi, hefur verið nauðgað, er í neyslu og svo mætti lengi telja. Rétt greining á vanda hans er frumskilyrði fyrir viðeigandi þjónustu. Skóli sem getur boðið nemendum upp á þjónustu félagsráðgjafa og náms- og starfsráðgjafa sýnir ábyrgð í verki. Þá er nokkuð tryggt að nemandanum verður vísað í rétt úrræði ef ekki er hægt að fást við vandann innan skólans. Ég leyfi mér að fullyrða, á grundvelli áratuga reynslu af vinnu með börnum og unglingum, að brottfall er beintengt þjónustuleysi á báðum skólastigum, grunn- og framhaldsskóla. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Sanna sundrar vinstrinu Guðbergur Egill Eyjólfsson Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Myndu ekki þurfa að flytja heim aftur Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir Skoðun Skatta-Grýlan ógurlega Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason Skoðun Þegar áfengið rænir jólunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Skoðun Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson skrifar Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason skrifar Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslensk ferðaþjónusta í nýju landslagi Ólína Laxdal skrifar Skoðun Sköpum öflugt, hafsækið atvinnulíf á viðskiptalegum forsendum! Gunnar Tryggvason skrifar Skoðun Hefurðu heyrt söguna? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Teygjum okkur aðeins lengra Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Spilakassar í skjóli mannúðar og björgunar Alma Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traustur grunnur, ný tækifæri Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Sanna sundrar vinstrinu Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Myndu ekki þurfa að flytja heim aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar áfengið rænir jólunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Skatta-Grýlan ógurlega Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson skrifar Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hvað hafa sjómenn gert Samfylkingunni? Sigfús Karlsson skrifar Skoðun Framtíð Suðurlandsbrautar Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Pípararnir okkar - Fagstéttin, metfjöldi, átakið, stuðningur Snæbjörn R. Rafnsson skrifar Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson skrifar Skoðun Ég ákalla! Eyjólfur Þorkelsson skrifar Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Samgöngumálið sem ríkisstjórnin talar ekki um Marko Medic skrifar Skoðun Mannréttindaglufur og samgönguglufur Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ólaunuð vinna kvenna Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Stjórnvöld beita sleggjunni og ferðaþjónustan á að liggja undir höggum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Ólögmæt mismunun eftir búsetu öryrkja fest í lög á Íslandi Jón Frímann Jónsson skrifar Sjá meira
Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson skrifar
Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Stjórnvöld beita sleggjunni og ferðaþjónustan á að liggja undir höggum Þórir Garðarsson skrifar
Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir Skoðun