
Auðvitað
Til samanlagðra starfsstyrkja við listsköpun varði íslenska ríkið á síðasta ári tæpum hálfum milljarði, en listastarfsemi lagði þessu sama ríki til fjögur prósent af þjóðartekjunum. Til samanburðar má geta þess að hlutur landbúnaðar er eitt prósent og sjávarútvegs 11%. Á móti kemur að ólíkt landbúnaði og sjávarútvegi er fræðilega mögulegt að lifa án lista. Að vísu hefur slíkt samfélag ekki enn þá litið dagsins ljós, en Íslendingar hafa áður bryddað upp á nýmælum. Til dæmis að taka þá skera Íslendingar sig um þessar mundir úr safni þjóðanna vegna menningarþátttöku almennings meiri en annars staðar tíðkast. Hér eru gefnar út og lesnar fleiri bækur á mann en í öðrum löndum, aðsókn að leikhúsum og tónleikum slær öll met. Engu að síður gerir fámennið að verkum að hér yrði listsköpun snöggtum fátæklegri ef ekki kæmu til styrkir. Svo ég nefni dæmi sem snertir rithöfunda sérstaklega þá telst meðal upplag af íslenskri skáldsögu vera um þúsund eintök – sem er í raun risavaxið og svarar til milljón eintaka í Bandaríkjunum, 220 þúsunda í Frakklandi, 20 þúsunda í Danmörku, og svo framvegis. Sem breytir ekki því að þóknun fyrir þúsund eintök stendur engan veginn undir þeirri vinnu sem þarf til verksins – en knýr samt bókaútgáfur, prentsmiðjur, auglýsingastofur, leggur fjölmiðlum til efni, nærir starfsemi bókasafna og er snar þáttur í menntakerfi landsmanna. Það gefur auga leið að starfslaun eru atvinnuhöfundum ekki aðeins nauðsynleg, þau eru forsenda þess að fjölmargir aðrir þættir samfélagsins virki.
Sem enn og aftur breytir ekki því að furðu margir virðast reiðubúnir að kosta töluverðum fjármunum til að svo megi ekki verða. Nú er löngu vitað að athafnir einstaklinga og þjóða ráðast ekki alltaf af skynsemi – raunar oft því öndverða. Fólk sér ofsjónum yfir þeim tæpa hálfa milljarði sem fer til samanlagðra starfsstyrkja listamanna – sem þó skila borðliggjandi ávinningi – en taka möglunarlaust á sig milljarða afskriftir banka og fyrirtækja, niðurgreiða með glöðu geði landbúnaðarafurðir, setja rétt svo í axlirnar þegar Húsnæðisstofnun tapar 230 milljörðum eða Seðlabankinn öðru eins í fallít banka og borgarstjórn Reykjavíkur sligar Orkuveituna með glórulausum framkvæmdum. En þegar kemur að úthlutun svokallaðra listamannalauna verður ekki bara árviss heldur langvarandi héraðsbrestur. Myndir birtast af völdum listamönnum, símalínur glóa, bloggin krauma og formaður fjárlaganefndar Alþingis býðst til að losa landsmenn við óværuna í eitt skipti fyrir öll.
Hvað var það aftur sem völvan klifaði á í ljóðinu langa, Völuspá? „Vituð ér enn, eða hvað?“ Sem á nútíma íslensku gæti útlagst: „Eruð þið að ná þessu?“
Skoðun

Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar
Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar

Er Akureyri að missa háskólann sinn?
Aðalbjörn Jóhannsson skrifar

Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims
Stella Samúelsdóttir skrifar

Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein
Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar

Mestu aularnir í Vetrarbrautinni
Kári Helgason skrifar

Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum
Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar

Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja
Þorsteinn Siglaugsson skrifar

Andaðu rólega elskan...
Ester Hilmarsdóttir skrifar

Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis
Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar

Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir
Bogi Ragnarsson skrifar

Kópavogsleiðinn
Ragnar Þór Pétursson skrifar

Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum
Nótt Thorberg skrifar

Lærum að lesa og reikna
Jón Pétur Zimsen skrifar

Loforðið sem borgarstjóri gleymdi
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Kristrún, það er bannað að plata
Snorri Másson skrifar

Öndunaræfingar í boði SFS
Vala Árnadóttir skrifar

Öndum rólega – á meðan húsið brennur
Magnús Magnússon skrifar

Umbylting ríkisfjármála á átta mánuðum
Jóhann Páll Jóhannsson skrifar

Mestu aularnir í Vetrarbrautinni
Kári Helgason skrifar

Átta atriði sem sýna fram á vanda hávaxtastefnunnar
Halla Gunnarsdóttir skrifar

50 þúsund nýir íbúar – Hvernig tryggjum við samheldni?
Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar

Framtíð nemenda í fyrsta sæti í Kópavogi
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Að setjast í fyrsta sinn á skólabekk
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Ferðalag úr fangelsi hugans
Sigurður Árni Reynisson skrifar

Hraðahindranir fyrir strætó
Sveinn Ólafsson skrifar

Íslenzkir sambandsríkissinnar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Garðurinn okkar fyllist af illgresi
Davíð Bergmann skrifar

Nýtt landsframlag – og hvað svo?
Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar

Fágætir dýrgripir í Vestmannaeyjum
Gunnar Salvarsson skrifar

Gjaldskyldulandið Ísland - Viltu hafa bílastæðagjald við hverja lækjarsprænu?
Hermann Helguson skrifar